Á aðventu 2010 stendur hópum frá félagasamtökum, vinnustöðum, úr leikskólum og skólum sem fyrr til boða að taka
þátt í skipulagðri dagskrá í Glerárkirkju. Tekið er á móti hópum frá þriðjudeginum 29 nóvember og fram
til mánudagsins 12. desember.
Skráning fer fram hjá Sverri í Glerárkirkju (sverrir[hjá]glerarkirkja.is / 464 8800). Hann gefur einnig upplýsingar um nánari
tímasetningar en bókað er eftir viðhorfinu ,,fyrstur kemur, fyrstur fær.“ – Gjarnan skoðum við óskir um aðrar tímasetningar seinna
í desember, ef slíkt hentar betur.
Fjölbreytt dagskrá er í boði og eru kennarar, forsvarsfólk vinnustaðahópa og ábyrgðaraðilar frá félagasamtökum hvattir til
að kynna sér hana og taka fram við pöntun á heimsóknartíma hvaða dagskrá er óskað eftir. Gjarnan má pússla saman fleiri en
einum dagskrárlið. Að sjálfsögðu er sem fyrr einnig velkomið að biðja um öðru vísi dagskrá en þá sem stungið er upp
á hér (til dæmis í tengslum við það þegar íþróttahópar koma og færa gjöf til hjálparstarfsins). Í
slíkum tilfellum eru viðkomandi beðnir um að hafa samband beint við þann prest/djákna sem óskað er eftir að taki á móti viðkomandi
hópi. - (sr. Gunnlaugur, 864 8455, sr. Arna, 864 8456, Pétur Björgvin djákni, 864 8451).
Eftirfarandi dagskrá er í boði:
1. Helgistund á aðventu. 10 – 15 mínútna helgistund þar sem fléttað er saman hversdagsleikanum, væntingum einstaklinganna, tilhlökkun
barnsins og boðskapi jólanna, allt eftir aldurshópi. Helgistundir þessar eru ýmist í umsjón prests eða djákna.
2. Jólakortin skoðuð. 10 – 15 mínútna gangur um anddyri kirkjunnar þar sem gömul jólakort eru til sýnis og rætt um jólakortin.
Umsjón: Prestur eða djákni. (ATH: Hægt að bæta við 15 mínútum og leysa verkefni sem felst í því að finna ýmsar
upplýsingar um jólakort og fleira sem tengist jólakortasýningunni.)
3. Pési gerist jólasveinn. Hér er á ferðinni um 20 mínútna dagskrá þar sem djákni bregður sér í hlutverk
Pésa. Pésa langar að gerast jólasveinn, hann er byrjaður að sauma búninginn en þykir sem að hann þurfi að læra meira um jólin.
Í gamalli tösku sem amma hans hafði átt fann hann ýmiskonar jóladót. En hvernig þessir hlutir tengjast jólunum er honum ekki alveg
ljóst og því fer hann í heimsókn til sr. Örnu. Ef hann ætlar að verða alvöru jólasveinn, hlýtur hann að þurfa að
læra meira um jólin.
4. Aðventuljósin. Sögð er saga af tilurð aðventukransins skv. þýskri hefð og rætt um tákn og nöfn á aðventukransi og
–kertum. Dagskráin tekur 10 til 20 mínútur eftir aldri og óskum viðkomandi. Umsjón: Prestur eða djákni.
5. Kynning á Hjálparstarfi kirkjunnar. 20 – 25 mínútna löng dagskrá þar sem prestur/djákni segir frá nokkrum þáttum
úr starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og sýnir myndir. (Ef við á: Tekið er á móti gjöfum til hjálparstarfsins og hópmynd tekin af
viðkomandi bekk þegar þau koma færandi hendi.)
6. Jólaguðsspjallið og við. Notaleg spjallstund í kapellu um jólaguðsspjallið. ATH: Aðeins fyrir litla hópa. Umsjón: Prestur eða
djákni. Dagskráin tekur 10 mínútur. ATH: Hægt er að skipta hópi upp, þannig að hluti hóps sé í þessari dagskrá
á meðan hinn hluti hópsins er í nr. 2 – svo er skipt.
7. Piparkökur og mjólkurglas. Þeir hópar sem það kjósa (muna að bóka þennan þátt) eru boðnir í piparkökur og
mjólkur- eða vatnsglas í tengslum við kirkjuheimsókn á aðventu. ATH: Ef einhver í hópnum eru með ofnæmi þá vinsamlegast
takið með e-ð í staðinn fyrir piparkökurnar.
Kær kveðja, Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni – petur@glerarkirkja.is / 864 8451.
Prenta frétt (pdf-skjal).