Alþjóðlegur bænadagur kvenna fer ár hvert fram fyrsta föstudag í mars. Markmið bænadagsins er að stuðla að réttlátari og friðsamlegri heimi með því að miðla upplýsingum um kjör kvenna, barna og karla í fjarlægum löndum og mynda alþjóðlega bænakeðju á þessum fyrsta föstudegi í mars ár hvert.
Einkunnarorð þessarar alþjóðlegu kvennahreyfingar eru: „Upplýst bæn – bæn í verki“.
Efni kvöldsins kemur frá Malasíu: Látum réttlætið sigra.
Að samkomunni lokinni verður boðið upp á kaffi og meðlæti.
Allir eru hjartanlega velkomnir.