Ný styttist í fermingar vorsins í Glerárkirkju, en fyrsta ferming er laugardaginn 9. apríl. Af því tilefni hafa prestar kirkjunnar nú
skrifað forráðafólki fermingarbarna bréf þar sem fram koma ýmsar hagnýtar upplýsingar varðandi undirbúning og skipulag
fermingarathafnanna. Bréfinu er dreift í fermingarfræðslu í þessari viku, en einnig aðgengilegt hér á vef kirkjunnar og
forráðafólki tilkynnt það í tölvupósti.
Þá bjóða prestarnir foreldrum og fermingarbörnum einnig í spjall um tilhögun fermingarathafnna sjálfra og er fólk beðið að
mæta í slíkt spjall annað hvort að lokinni messu þann 27. mars eða að lokinni fjölskylduguðsþjónustu þann 3. apríl. Lesa
má bréfið
hér á vefnum.
Í bréfinu er einnig að finna upplýsingar um tilhögun þemaviku fermingarbarna sem hefst næstkomandi sunnudag. Nánar má fræðast um
þemavikuna
hér á vefnum, en bréf þess efnis er einnig aðgengilegt hér á vefnum sem
pdf-skjal.