Gospelmessa 27.okt kl.18:00

Það er komið að þessu. Sunnudaginn 27. október kl.18:00 verður fyrsta messa nýstofnaðs Gospelkórs Glerárkirkju.
Verið hjartanlega velkomin til að njóta góðrar samveru í kirkjunni ykkar þar sem þakklætið verður þema í lestrum, hugvekju og kraftmiklum gospellögum.
María G. Ágústsdóttir þjónar, Gospelkórinn syngur undir stjórn Helgu Hrannar Óladóttur og Risto Laur spilar undir. Hópur fermingarbarna tekur þátt í að leiða stundina.
Verið velkomin.