Kyrrðardagur á Möðruvöllum 23. nóvember kl. 10-17

Næsti kyrrðardagur verður 23. nóvember á Möðruvöllum. Að þessu sinni verður auk kyrrðarbænarinnar kynnt svo kölluð fagnaðarbæn sem sr. María G. Ágústsdóttir mun leiða.

Kyrrðardagar höfða til margra sem vilja stíga út úr skarkala hversdagsins og leita þess að styrkja samband sitt við Guð í kyrrð.

Verð: 3.000 kr. Það er fyrir hádegismat og kaffitíma.

Skráning er til og með 21. nóvember í síma 897 3302 eða gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is. Eða í Glerárkirkju glerarkirkja@glerarkirkja.is og 464 8800 á virkum dögum fyrir hádegi.