Laugardaginn 3. október verður kyrrðardagur á Möðruvöllum í Hörgárdal. Þar hafa verið haldnir kyrrðardagar á hverju misseri og aðstæður til kyrrðar, íhugunar og hvíldar mjög gjóðar. Umsjón hafa sr. Guðmundur, sr. Guðrún og sr. Oddur Bjarni. Skráning er hjá Guðmundi Guðmundssyni í síma 897 3302 og gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is
Kyrrðardagar höfða til margra sem vilja stíga út úr skarkala hversdagsins og leita þess að styrkja samband sitt við Guð í kyrrð. Verð: 2000 kr.