Nýr sönghópur í Glerárkirkju

Í haust ætlum við að fara af stað með sönghóp hér í kirkjunni sem hefur sérstaka áherslu á gospel- og rytmíska tónlist.
Það verður spennandi að auka fjölbreytni tónlistarstarfsins í kirkjunni en þetta er viðbót við rótgróið starf Kirkjukórs Glerárkirkju sem fagnaði stórafmæli í vor.

Helga Hrönn Óladóttir verður stjórnandi þessa nýja sönghóps en hún hefur mikla reynslu af kórastarfi og hefur sett saman og leitt sönghópa fyrir tónleika og viðburði hér í bæ undanfarin ár.

Helga og Óskar Einarsson munu vera með raddprufur fyrir þennan nýja sönghóp sunnudaginn 8. September kl.13:00 í Glerárkirkju.
Reikna má með söngæfingum á þriðjudags kvöldum auk þess sem gera má ráð fyrir að hópurinn syngi einusinni í mánuði við helgihald í kirkjunni.
Skráning í raddprufur og meiri upplýsingar: sindrigeir@glerarkirkja.is