Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir mun kveðja söfnuðinn í messu sunnudagskvöldið 17. ágúst kl. 20:30. Hún heldur nú til starfa
í Grafarvogssöfnuði í Reykjavík eftir fjögurra ára þjónustu hér. Allir eru velkomnir að taka þátt í helgihaldinu
og þiggja veitingar að messu lokinni.