Við í Glerárkirkju óskum þjóðinni allri til hamingju með kvenréttindadaginn og hvetjum fólk til að mæta í árlega kvennasögugöngu Jafnréttisstofu, Minjasafnsins á Akureyri, Zontakvenna og Akureyrarbæjar.
Gangan hefst við nýja kaffihúsið í Lystigarðinum, Café Björk, kl. 16:30 og endar við Minjasafnið á Akureyri. Björgvin
Steindórsson, forstöðumaður Lystigarðsins mun ávarpa göngufólk. Leiðsögumaður kvennasögugöngunnar í ár er
Hörður Geirsson, safnvörður Minjasafnsins.
Boðið verður uppá kaffi að göngu lokinni. Bæjarbúar og gestir eru hvattir til að mæta og upplifa hluta af sögu kvenna í Innbænum.
Kvennasögugangan er nú gengin í fimmta sinn á Akureyri en þátttaka hefur alltaf verið mjög góð. Gangan hefur myndað nýja tengingu
við Innbæinn og varpar ljósi á líf kvenna sem höfðu margar hverjar mikil áhrif á bæjarlífið á sínum
tíma.