25.09.2009
Þau Guðný, Guðrún, Herdís, Ísak, Sandra og Samúel fóru í ágúst síðastliðinn ásamt Pétri
djákna til Póllands. Erindið var að taka þátt í ungmennaskiptaverkefni með fjórum öðrum þjóðum. Upplifun þeirra er
efni fræðslukvölds í safnaðarsal Glerárkirkju miðvikudagskvöldið 28. september næstkomandi. Dagskráin hefst kl. 20:00 og er öllum opin.
Sjá einnig á www.facebook.com/glerarkirkja
18.09.2009
Í pistli dagsins á trú.is skrifar Pétur Björgvin djákni meðal annars: ,, ...vildi ég óska þess að ég væri duglegri
að hrósa öðrum. Þegar ég lít í eigin barm uppgötva ég að það kemur þó oftar fyrir að ég hrósi
einhverjum sem er að byrja eitthvað nýtt, kemur með nýung inn í starfið, gerir eitthvað bráðsnjallt og skemmtilegt."
Lesa pistilinn á trú.is
15.09.2009
Miðvikudagur 16. september
12:00 Hádegissamvera
15:00 Kynningarstund á fermingarfræðslunni fyrir krakka úr Glerárskóla
16:00 Kynningarstund á fermingarfræðslunni fyrir krakka úr Síðuskóla
Fimmtudagur 17. september
10:00 Foreldramorgunn
15:15 Kynningarstund á fermingarfræðslunni fyrir krakka úr Giljaskóla
19:00 Föndurkvöld kvenfélagsins Baldursbrár
Föstudagur 18. september
19:30 KNS (Framhaldsskólaaldurinn) í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð
Sunnudagur 20. september
11:00 Barnastarf og messa. Sameiginlegt upphaf.
20:30 Kvöldguðsþjónusta með Krossbandinu
Mánudagur 21. september
15:30 Æfingar Barnakórs Glerárkirkju (2. til 5. bekkur)
16:30 Æfingar Æskulýðskórs Glerárkirkju (6. bekkur og eldri)
16:30 Kirkjuskólinn (1. til 4. bekkur)
18:00 Vinir í bata
19:30 12 Spora fundir
Þriðjudagur 22. september
15:00 Æfingar Drengjakórs Glerárkirkju ( 4. til 7. bekkur)
17:00 TTT klúbburinn ( 5. til 7. bekkur)
18:00 Glerbrot (8. til 10. bekkur)
20:00 Æfingar Kórs Glerárkirkju
20:00 Alfa námskeið hjá KFUM og KFUK í Sunnuhlíð
03.09.2009
Multivitamin is for young people from all over the world. The YMCA and Glerárkirkja church are working together on this project.The program starts on Monday 14th October in the
YMCA-house (Verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð). Multivitamin is open for young people age 14 to 17, every second Monday from 19:00 to 21:30. If you are interested please contact
us by phone. 699-4115 or 864-8451. The program is free of charge.
Fjölvítamín er verkefni á vegum KFUM og KFUM í samstarfi við Æskulýðsstarf Glerárkirkju. Fjölvítamín er
félagsstarf fyrir nýbúa og ungt fólk sem er fætt á Íslandi og er opið öllum sem hafa áhuga og eru 14 til 17 ára. Viltu vera
með? Endilega sendu okkur SMS eða hringdu: Jóhann 699-4115 og
Pétur 864-8451
03.09.2009
Kirkjuskólinn, starf fyrir grunnskólabörn úr fyrsta, öðrum, þriðja og fjórða bekk verður á mánudögum í
Glerárkirkju kl. 16:30 til 17:30. Fyrsta samveran verður 14. september. Stefnt er að starfi í tveimur aldurshópum, annars vegar yngri hóp fyrir börn úr
fyrsta og öðrum bekk, hins vegar eldri hóp fyrir börn úr öðrum og þriðja bekk. Kirkjuskólinn er framhald af sunnudagaskólastarfinu og
gefur þannig börnum sem hafa sótt sunnudagaskólann eða sækja hann enn að hittast einnig á virkum dögum. Hver stund byrjar með helgistund
í kirkjunni, að henni lokinni er farið í ýmsa leiki og fleira til gamans gert. Lögð er áhersla á að börnin læri nýja
biblíusögu hvern dag.