07.12.2010
Jólatónleikar Kórs Glerárkirkju verða sunnudaginn 12. desember kl. 16:00. Efnisskráin er mjög fjölbreytt og er hún hugsuð fyrir fólk
á öllum aldri. Þar er að finna lög og sálma sem er gott að hlusta á og einnig slík sem gott er að syngja með. Sérstakir gestir
á tónleikunum verða hinir þjóðþekktu Hvanndalsbræður.
04.12.2010
Þessa dagana stendur yfir 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Af því tilefni skrifar Pétur Björgvin
djákni í Glerárkirkju pistil á trú.is sem nefnist Jörðin er flöt, en þar segir hann meðal
annars:
Ég vil reyna að brjótast upp úr því djúpa hjólfari sem karlremba
árþúsundanna situr enn föst í. Þó þykir mér sem það gangi hægt – það að koma sjálfum mér
upp úr þessu hjólfari.
Lesa pistil á trú.is
02.12.2010
Aðventukvöld verður haldið í Glerárkirkju sunnudagskvöldið 5. desember og hefst það kl. 20:30. Gestur kvöldsins og ræðumaður er
Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum. Kór Glerárkirkju, ásamt Æskulýðskór Glerárkirkju syngur og leiðir
almennan söng undir stjórn Valmars Väljaots. Ljósaathöfn fermingarbarna í lok stundarinnar.
01.12.2010
Þessi saga hefst í byrjun desembermánaðar 1986. Nokkrir skátar leggja leið sína frá Austurríki til Betlehem. Á bak við ferðina
standa austurríska útvarpið og skátahreyfingin þar í landi. Þetta er friðarför.
29.11.2010
Út er komin hjá bókaútgáfunni Tindur bókin Ást fyrir lífið í íslenskri þýðingu Péturs Björgvins
djákna í Glerárkirkju. Hún er ætluð fólki sem vill leggja í sjálfnám og vinnu við eigið hjónaband.
Sjá kynningu á vef bókaútgáfunnar.
26.11.2010
Á sunnudaginn kemur hefst aðventan. Í Glerárkirkju fögnum við upphafi hennar með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11. Þar verður kveikt
á 1. kerti aðventukransins og sungnir aðventusálmar. Barna- og æskulýðskórar kirkjunnar leiða sönginn. Einnig fáum við að heyra
börn úr 2. bekk Síðuskóla flytja nokkur lög á blokkflautur. Prestur er Arna Ýrr Sigurðardóttir. Sunnudagaskólinn fyrir yngri
börn er á sama tíma með sameiginlegu upphafi. Allir eru velkomnir.
26.11.2010
Í pistli dagsins á trú.is skrifar Pétur Björgvin djákni um samskipti og nauðsynlega forsendu samskipta: Það að við skiljum hvort
annað og þau hugtök sem við notum.
Lesa pistil á trú.is.
25.11.2010
Um fimm ára skeið hafa starfað erlendir sjálfboðaliðar í Glerárkirkju, en Glerárkirkja fékk vottun sem viðurkennd
móttökusamtök árið 2005. Frá því á síðasta ári er Glerárkirkja einnig viðurkennd sendisamtök.
Sjá frétt á vef prófastsdæmisins.
23.11.2010
,,Ég óska mér þess að við séum fús að læra af
reynslu forfeðra, nágranna og samferðafólks, hlusta á hvort annað ..." skrifar Pétur Björgvin djákni meðal annars í pistli dagsins á trú.is.
21.11.2010
Síðustu mánudagskvöld hefur verið boðið upp á umræðukvöld um stefnumál kirkjunnar í Glerárkirkju. Næstkomandi
mánudagskvöld er síðasta umræðukvöldið að sinni en þar munu fulltrúar kjördæmisins á Kirkjuþingi segja frá
helstu niðurstöðum af þinginu.