31.08.2011
12 spora starfið hefst mánudaginn 12. september með kynningarfundi. Hádegissamverurnar hefjast miðvikudaginn 14. september og foreldramorgnarnir fimmtudaginn 15. september.
Allt verður þetta nánar auglýst í næstu viku, bæði hér á netinu og í Dagskránni. Fylgist með:)
18.09.2011
Barnastarfið samhliða sunnudagsmessum í Glerárkirkju hefst sunnudaginn 18. september. Svipað fyrirkomulag verður á barnastarfinu í vetur og verið
hefur. Sameiginlegt upphaf er í messunni en þátttakendur í barnastarfinu hverfa svo fljótlega úr kirkjunni og yfir í safnaðarsalinn. Mikil
áhersla verður lögð á söng og lifandi sögur.
30.08.2011
Kvöldmessa verður sunnudagskvöldið 4. september kl. 20:30. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar, félagar úr Kór Glerárkirkju leiða
almennan söng. Molasopi er í boði eftir messu. Allir velkomnir. Þetta er síðasta kvöldmessa sumarsins, sunnudaginn 11. september munum við breyta yfir
í vetrartakt með messu kl. 11.
29.08.2011
Sóknarnefndarkonu úr höfuðborginni þykja skrif mín þjóna litlum tilgangi. Á meðan djáknar, prestar og aðrir starfsmenn
kirkjunnar mæti bara eftir pöntun væru orð í ræðu og riti hjákátleg. Vímuvarnastefna kirkjunnar væri þar gott dæmi.
Lesa pistil á trú.is.
25.08.2011
Kvöldmessa verður kl. 20:30 sunnudaginn 28. ágúst. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar, félagar úr Kór Glerárkirkju
leiða almennan söng. Allir velkomnir. Molasopi eftir messu.
25.08.2011
Áhugafólk um kristni og samfélag er hvatt til að taka miðvikudagskvöldin í október og nóvember frá. Á hverju
miðvikudagskvöldi þá tvo mánuði verða samræðukvöld í Glerárkirkju í samstarfi við Eyjafjarðarprófastsdæmi
um trúna á Krist, guðspjöllin og nútímann. Í umræðu kvöldanna verður meðal annars stuðst við bók páfa
,,Jesús frá Nasaret"
24.08.2011
„Umsóknum um aðstoð til efnaminni foreldra framhaldsskólabarna til greiðslu á skólagjöldum og skólabókum hefur fjölgað
þó nokkuð,“ segir Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar í frétt á mbl.is í dag. Um leið og við bendum á þessa frétt
minnum við í Glerárkirkju á viðtalstímana í kirkjunni þriðjudaga til föstudaga frá 11:00 til 12:00, en á þeim tíma
er hægt að sækja um aðstoð frá hjálparstarfinu, eða hafa samband og ganga frá því að komið sé á öðrum
tíma. Þeim sem hafa tök á því að styðja hjálparstarfið er bent á vefsíðuna framlag.is.
29.08.2011
Hjördís Eva Ólafsdóttir kórstjóri Barnakórs Glerárkirkju tekur við skráningum í kórinn mánudaginn 29.
ágúst næstkomandi milli kl. 15:00 og 16:00. Æfingar kórsins verða á mánudögum milli þrjú og fjögur. Öll börn
úr fyrsta til fimmta bekk eru hjartanlega velkomin í Barnakór Glerárkirkju.
22.08.2011
Víðförli er fréttabréf Þjóðkirkjunnar sem kemur út
reglulega sem vefrit. Þann 20. ágúst sl. kom út nýtt tölublað. Hægt er að nálgast blaðið og gerast áskrifandi
(ókeypis) á vefslóðinni: http://kirkjan.is/utgafa/vidforli/ . Ef smellt er á myndina hér til hægri opnast
nýjasta tölublaðið.
20.08.2011
Dr. Olav Fykse Tveit er norskur prestur og framkvæmdastjóri Alkirkjuráðsins, World Council of Churches. Það eru samtök 349 kirkna í yfir 110 löndum
og landssvæðum um allan heim, bæði rétttrúnaðarkirkna og fjölmargra ólíkra mótmælendakirkna. Meðlimir þeirra eru
samtals yfir 560 milljónir. Í pistli á trú.is skrifar hann m.a.:
Við erum, sem kristin kirkja, skuldbundin til að vinna saman að réttlátum friði. Það þýðir að vinna að
opnum samfélögum þar sem fólk í öllum hópum samfélagsins er meðhöndlað sem einstaklingar með skyldur og réttindi og
þar sem óréttmæt og syndug hegðun er fordæmd. Við þurfum að huga að samvisku okkar - um það hvað við segjum og hvað við
segjum ekki - og halda áfram samræðunni við nágranna okkar.
Lesa pistil á trú.is