06.02.2011
Sunnudaginn 6. febrúar er kvöldmessa kl. 20:30. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar, félagar úr Kór Glerárkirkju leiða almennan söng.
Allir velkomnir.
06.02.2011
Sunnudaginn 6. febrúar er fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar ásamt Pétri Björgvin Þorsteinssyni
djákna. Barnakór Glerárkirkju syngur undir stjórn Hjördísar Evu Ólafsdóttur. Fermingarbörn taka þátt í helgileik.
Barnastarf fyrir yngri börnin er í safnaðarheimili á sama tíma. Sameiginlegt upphaf. Allir velkomnir.
07.02.2011
Eru þjóðgildin bara orðin tóm? Eiga þau erindi til okkar? Hvaða máli skipta þau? Hvernig tengjast hefðir og siðir í landinu tilvist
okkar og framtíðarsýn? Þessar og fleiri spurningar verða ræddar á umræðukvöldum í Glerárkirkju sem hefjast 7. febrúar
næstkomandi með framsögu Gunnars Hersveins, en umræðukvöldin eru byggð á bók hans Þjóðgildin.
27.01.2011
Allir eru hjartanlega velkomnir á handavinnukvöld Baldursbrár sem eru öll fimmtudagskvöld milli 19:00 og 21:00 á neðri hæð kirkjunnar. Gengið inn
að norðan.
Munið aðalfundinn 17. febrúar næstkomandi kl. 20:00!
26.01.2011
Miðvikudagskvöldið 26. janúar kl. 18:00 verður kynning á næsta ALFA námskeiði í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð.
Námskeiðið fjallar um bréf gleðinnar, Filippíbréfið. Umsjón með námskeiðinu hafa sr. Guðmundur Guðmundsson
héraðsprestur og Fjalar Freyr Einarssonar kennari.
Sjá nánar á vef Eyjafjarðarprófastsdæmis.
18.02.2011
ÆSKEY og KFUM og KFUK á Norðurlandi standa fyrir febrúarmóti dagana 18. og 19. febrúar á Hrafnagili. Þar mun fjöldi krakkar úr TTT
klúbbum kirknanna og úr yngri deildar starfi KFUM og KFUK hittast og eiga saman góðar stundir við leik og fræðslu.
Sjá nánar: http://www.glerarkirkja.is/is/kirkjan/news/daginn-i-dag-gerdi-drottinn-gud/
19.01.2011
Það er ýmislegt sem gengur á í dagsins önn. Djákninn ákvað að auglýsa sunnudagaskólastarfið
og minna á að það er í gangi alla sunnudaga og viti menn, þessi fína auglýsing er nú á baksíðu Dagskrárinnar, eina sem
er ekki fínt er að hún fór inn með vitlausri dagsetningu, það er semsagt að sjálfsögðu sunnudagaskóli á sunnudaginn!
Réttu auglýsinguna má skoða hér!
18.01.2011
Skráning stendur yfir á samskiptanámskeiðið ÁST FYRIR LÍFIÐ og er fólk hvatt til að skrá sig strax í dag á netfangið
petur[hjá]glerarkirkja.is
Skoða frétt um námskeiðið hér á vef Glerárkirkju
Fræðast nánar um bókina og námskeiðin
23.01.2011
Spiel und Spass er heiti á tómstundastarfi fyrir krakka sem eru þýskumælandi - bæði þau sem eru með þýskan bakgrunn sem og þau
sem hafa búið í Þýskalandi í einhvern tíma. Boðið verður upp á samverur í nokkur skipti á sunnudögum nú
á vorönn, en hér er um tilraunaverkefni að ræða. - Für Deutsch bitte auf ,,Lesa meira" klicken.
17.01.2011
Samkirkjuleg bænavika hófst í gær, sunnudaginn 16. janúar með útvarpsguðsþjónustu í Glerárkirkju. Þar flutti Imma,
Ingibjörg Jónsdóttir foringi í Hjálpræðishernum, blessunarrík orð sem nú má nálgast á trú.is, en einnig er
hægt að hlusta á athöfnina í heild sinni á vef RÚV.
Lesa prédikun Immu á trú.is
Hlusta á athöfnina á RÚV.is
Skoða dagskrá bænavikunnar
Skoða myndir frá athöfninni