14.01.2011
Nú er framundan nýtt og spennandi ár hjá Kór Glerárkirkju. Við getum bætt við okkur söngfólki í allar raddir en eins og
margir kórar erum við sérstaklega á höttunum eftir tenórum. Nánari upplýsingar gefur Valmar Väljaots í síma 849 2949.
Líka má senda honum póst á netfangið: valmar@glerarkirkja.is
12.01.2011
Vordagskrá æskulýðsfélagsins Glerbrots var samþykkt á félagsfundi í gærkvöldi en tíu krakkar mættu á fund til
þess að ræða dagskrá vorsins ásamt þeim Stefaníu Ósk og Samúel Erni sem hafa umsjón með starfinu á vorönn.
Dagskrá félagsins má nálgast á vef kirkjunnar sem pdf-skjal.
11.01.2011
Hér á eftir má sjá upplýsingar um áætlaða fermingardaga vorið 2012 í Glerárkirkju.
11.01.2011
Þessa dagana er unnið að uppsetningu á nýjum vef fyrir Glerárkirkju og því er þetta nokkurs konar vinnusvæði þar sem
upplýsingarnar verða meiri og meiri - við biðjumst velvirðingar á því. Vinsamlegast notið fyrirspurnadálkinn (sjá tengil hér efst
til hægri) til að senda inn ábendingar varðandi síðuna. Ein ábending sem barst var að tengja síðuna við Twitter og nú prófum
við það!
16.01.2011
Árleg bænavika um einingu kristinna manna verður í söfnuðunum á Akureyri 16. - 23. janúar. Bænavikan hefst með
útvarpsguðsþjónustu frá Glerárkirkju sunnudaginn 16. janúar kl. 11:00
23.01.2011
Samskiptanámskeiðið Ást fyrir lífið er ætlað fólki á öllum aldri sem vill leggja vinnu í samband við maka og aðra
meðlimi fjölskyldunnar. Sunnudaginn 23. janúar verður boðið upp á námskeiðið í Glerárkirkju.
05.01.2011
HÆNA - Hæfileikakeppni NorðAusturlands verður haldin laugardaginn 5. febrúar kl. 19:00 í Egilsstaðaskóla. Keppnin er opin ungu fólki á
aldrinum 13 til 17 ára úr kirkjustarfi og stefnir æskulýðsfélagið Glerbrot á þátttöku. Einnig er vonast eftir
þátttöku frá fermingarbörnum úr Glerárkirkju
04.01.2011
Æskulýðsfélagið Glerbrot stefnir á þátttöku í æskulýðsmóti sem haldið verður í
Brúarásskóla í Jökulsárhlíð á Norður-Héraði helgina 4.-6. febrúar 2011. Yfirskrift mótsins er sótt
í Filippíbréfið 2.5: “Með sama hugarfari og Kristur”. Mótið er ætlað unglingum í 8.-10. bekk, sem taka
þátt í æskulýðsstarfi kirkjunnar sinnar, og gert er ráð fyrir yfir 100 þátttakendum.