21.09.2011
Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi í samstarfi við Glerárkirkju stendur fyrir samræðukvöldum á miðvikudögum kl. 20:00
í október og nóvember eins og undanfarin misseri. Tilgangurinn með þeim er að skapa vettvang til samtals um kirkju og kristni og eru allir sem áhuga hafa
velkomnir til að taka þátt í samtalinu.
26.09.2011
12 spora fundir í Glerárkirkju verða á mánudögum kl. 19:30 í vetur. Mánudagskvöldið 26. september er síðasta opna
kvöldið, þar sem öllum gefst kostur á að kynna sér starfið. Í október tekur við lokað hópastarf.
Skoða auglýsingu.
18.09.2011
Sunnudagurinn 18. september 2011 er dagur kærleiksþjónustunnar. Prédikunina sem flutt var í Glerárkirkju er að finna á trú.is
Lesa prédikun.
16.09.2011
Í næstu viku verða haldnir kynningarfundir fyrir væntanleg fermingarbörn vetrarins. Sent hefur verið út bréf með skráningarblaði og
eru fermingarbörnin beðin að koma með blaðið útfyllt á kynningarfundina. Skráningarblaðið er einnig að finna hér á netinu.
22.09.2011
Samvera eldri borgara verður í Glerárkirkju fimmtudaginn 22. september næstkomandi og hefst að vanda klukkan þrjú. Góðir gestir koma í
kirkjuna klukkan hálf fjögur en það eru ljóðskáld úr ljóðahópi Gjábakka sem flytja frumsamin ljóð. Enginn
aðgangseyrir en kaffihlaðborð á vægu verði. Allir hjartanlega velkomnir.
18.09.2011
Sunnudagurinn 18. september er dagur kærleiksþjónustunnar. Af því tilefni verður vetrarstarfið í Glerárkirkju kynnt og það gert að
sérstöku fyrirbænaefni dagsins. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og sr. Guðmundur Guðmundsson þjóna, Pétur Björgvin Þorsteinsson
djákni, prédikar. ATH: Barnastarf á sama tíma, sameiginlegt upphaf í messu.
19.09.2011
12 spora fundir verða á mánudagskvöldum í vetur í Glerárkirkju kl. 19:30 (ATH: Breyttur tími frá fyrstu auglýsingum). Enn er
hægt að bætast í hópinn! Tvö svokölluð opin kvöld eru enn eftir, þar sem öllum gefst kostur á að kynna sér starfið.
Að þeim loknum tekur við lokað hópastarf.
Skoða auglýsingu.
15.09.2011
Á fimmtudagsmorgnum frá 10:00 til 12:00 eru foreldramorgnar í Glerárkirkju. Þar hittast foreldrar ungra barna og njóta samverunnar við aðra foreldra
og börnin. Gott aðgengi er að safnaðarsal Glerárkirkju og auðvelt að láta barnavagninn standa nærri inngangi eða í forkirkjunni. Umsjón
með foreldramorgnunum hefur sr. Arna ýrr Sigurðardóttir. Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð á vægu verði. Einnig er hægt
að kaupa fimm miða kort.
14.09.2011
Kvenfélagið Baldursbrá hefur nú hafið starfsemi aftur að loknu sumarleyfi og ættu allar félagskonur að fá bréf með dagskrá
félagsins í pósti á næstu dögum. Fundir félagsins eru á fimmtudagskvöldum kl. 19:30 samkvæmt dagskrá félagsins, en
þau fimmtudagskvöld sem ekki er fundur, hittast félagskonur frá 19:00 til 21:00 á handavinnukvöldum sem eru opin öllum konum. Nánari
upplýsingar um starf félagsins gefur formaður þess, Snjólaug Ósk Aðalsteinsdóttir í síma 462 1509. Í dagatali hér á
síðunni má einnig sjá dagskrá hvers fimmtudags.
08.09.2011
Fyrsta morgunmessa haustsins verður sunnudaginn 11. september nk. og hefst að venju kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar, Félagar úr
Kór Glerárkirkju leiða almennan söng. Ath. sunnudagaskólinn hefst sunnudaginn 18. september.