19.02.2011
Séra Lárus Halldórsson lést
hinn 15. febrúar á nítugasta og fyrsta aldursári og verður útför hans gerð frá Dómkirkjunni mánudaginn 21. febrúar
næstkomandi. Séra Lárus var mörgum íbúum hér í sókninni vel kunnur, enda sinnti hann meðal annars afleysingaþjónustu
í Lögmannshlíðarsókn frá nóvember 1990 og fram í maílok 1991.
18.02.2011
Hver er staðan á
þjóðgildunum sem viska fjöldans valdi á Þjóðfundinum 14. nóvember 2009? Eru hugtök eins og heiðarleiki, virðing,
réttlæti og lýðræði bara orðin tóm? Umræðan um þjóðgildin heldur áfram á mánudagskvöldum kl. 20:00
í Glerárkirkju.
18.02.2011
Hversdagurinn getur verið grár.
Áskoranirnar eru margvíslegar á virkum dögum og helgar geta verið misskemmtilegar. Okkur gengur misvel að sjá gleðigjafana í kringum okkur. Sum
okkar eiga auðveldar með að geisla af gleði, önnur eru lengur að hrissta af sér slenið. Hvað er því betra en að setjast upp í
rútu og skella sér í skemmtiferð með rúmlega 100 jafnöldrum þar sem gleðin er í fyrirrúmi í leik og starfi.
18.02.2011
Kvenfélagið Baldursbrá
stendur fyrir bingói í safnaðarsal Glerárkirkju laugardaginn 19. febrúar kl. 14:00. Allur ágóði rennur í ferðasjóð
Jóhanns Þórs Hólmgrímssonar í skíðaskóla fatlaðra í Winter Park í Colorado.
17.02.2011
Þessar vikurnar fer fram umræða um þjóðgildin á mánudagskvöldum í Glerárkirkju. Síðastliðið
mánudagskvöld var rætt um hugtökin ábyrgð og frelsi. Framsögumaður var Baldur Dýrfjörð frá Sjálfsstæðisflokknum, en
sr. Svavar A. Jónsson hóf kvöldið með helgistund þar sem hann ræddi um hugtökin í hugleiðingu sinni.
Á vef Eyjafjarðarprófastsdæmis má nú lesa samantekt frá kvöldinu.
11.02.2011
Áhugasömum er bent á að nú má nálgast myndbandsupptöku af fyrirlestri dr. Péturs Péturssonar um Matthías Jochumsson og andlegt
líf á Akureyri á vef AkureyrarAkademíunnar.
11.02.2011
Þjóðgildakvöldin, umræðukvöld um þjóðgildin og kristna siðfræði halda áfram í Glerárkirkju næstkomandi
mánudagskvöld 14. febrúar og hefst dagskráin kl. 20:00. Framsögumaður er Baldur Dýrfjörð frá Sjálfsstæðisflokknum.
Helgistund kvöldsins er í umsjón sr. Svavars Alfreðs Jónssonar.
Sjá nánar á vef prófastsdæmisins.
09.02.2011
Við hér í Glerárkirkju bendum fólki á fræðslumynd sem nefnist Vísindakirkjan - Sannleikurinn um lygina sem verður sýnd á
RÚV kl. 22:15 í kvöld. Hér er um heimildamynd um Vísindakirkjuna og aðferðirnar sem notaðar eru til þess að lokka fólk í hana og
halda því þar.
08.02.2011
Á vef prófastsdæmisins má nú finna stutta samantekt frá fyrsta umræðukvöldinu um þjóðgildin.
Lesa áfram á vef prófastsdæmisins.
07.02.2011
Í kvöld, mánudagskvöldið 7. febrúar er fyrsta af átta umræðukvöldum um þjóðgildin sem verða í Glerárkirkju
í febrúar og mars. Framsögumaður kvöldsins er Gunnar Hersveinn, höfundur bókarinnar ÞJÓÐGILDIN.
Lesa má nánar um kvöldin á vef
prófastsdæmisins, og einnig pistil á trú.is.