06.03.2011
Söngmessa með félögum í Kór Glerárkirkju undir stjórn Valmars og Sr. Örnu Ýrrar. Sungnir verða sálmar úr
"Sálmabók barnanna" nr. 175 Barn þitt vil ég vera, 194 Megi gæfan, 166 Þú er Guð sem gefur lífið, 105 Í
bljúgri bæn, 38 Drottinn er minn hirðir, 58 Ég er lífsins brauð.
03.03.2011
Nú eru listar með fermingarbörnum vorsins komnir inn á síðuna. Þá getið þið fundið hér:
03.03.2011
Mánudagskvöld
eru þjóðgildakvöld á vorönn í Glerárkirkju. Næsta mánudag mun Guðmundur Baldvin Guðmundsson frá Framsóknarflokknum
fjalla um lýðræði og jöfnuð, en sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir mun sjá um hugvekju í upphafi kvöldsins. Frásagnir af
kvöldunum eru birtar á vef prófastsdæmisins, hugvekjur kvöldanna gerðar aðgengilegar á vefnum og framsöguerindið birt á youtube.
02.03.2011
Á æskulýðsdegi kirkjunnar þann 6. mars næstkomandi er fjölbreytt dagskrá í boði í Glerárkirkju. Dagskrá dagsins hefst
með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11:00. Sunnudagaskólinn er á sínum stað á sama tíma. Um kvöldið, kl. 19:30 stendur
æskulýðsfélagið Glerbrot fyrir góðgerðakaffihúsi þar sem vöfflur verða seldar og ágóðinn verður nýttur
í að leysa þrælabörn úr ánauð. Kl. 20:30 er svo komið að söngmessu í umsjón sr. Örnu og Valmars organista.
01.03.2011
Einn ef þeim hópum sem hittist reglulega í Glerárkirkju er ,,Spiel und Spass" hópurinn. In Glerárkirkja trifft sich die ,,Spiel und Spass" Gruppe jeden
Sonntag um 16:00 Uhr. Kinder die Grundkenntnisse in Deutscher Sprache haben sind herzlich willkommen.
01.03.2011
Þemavika fermingarbarna hófst með fjölmennri guðsþjónustu síðastliðið sunnudagskvöld þar sem fermingarbörn og foreldrar
tóku virkan þátt í helgihaldinu. Í gær mánudag bauðst krökkunum svo að kynnast því hvernig það er að syngja
í æskulýðskór og létu nokkur fermingarbörn sjá sig - bæði strákar og stelpur. Við hér í Glerárkirkju
fögnum þessari virku þátttöku og hlökkum til að sjá hve mörg mæta í dansinn í dag kl. 17:00. Einnig minnum við á
að fermingarfræðslan er á sínum stað, dagskrár þemaviku er til viðbótar við hefðbundna fræðslu.