16.12.2011
Söfnunin "Mér er ekki sama" verður send út í beinni útsendingu frá Hofi föstudagskvöldið 16. desember kl. 20. Gestir og gangandi eru
velkomnir í salinn. Enginn aðgangseyrir en tekið verður á móti frjálsum framlögum sem renna óskipt til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Sjá nánar á menningarhús.is og á help.is
16.12.2011
Sunnudagurinn 18. desember er fjórði sunnudagur í aðventu. Þann dag er mikið um dýrðir í
Glerárkirkju.
Klukkan ellefu er fjölskylduþjónusta með fjölbreyttri dagskrá og gengið
í kringum jólatréð í lokin.
Klukkan fjögur eru jólatónleikar Kórs Glerárkirkju og kórs eldri borgara ,,Í
fínu formi"
Við í Glerárkirkju vonumst til þess að sjá ykkur sem flest.
Þá minnum við einnig á aðventusamveru eldri borgara, föstudaginn 16. desember klukkan
þrjú.
15.12.2011
Dagurinn styttist óðum og skammdegið ræður ríkjum. Hátíð ljós og friðar er skammt undan. Aðventan er hafin. Margir farnir að
lýsa upp og skreyta híbýli sín með jólaljósum. Það er tilhlökkun í loftinu, jólaundirbúningur er að fara í
fullan gang. Jólagjafainnkaupin eru sjálfsagt byrjuð hjá mörgum og margir að reyna að uppfylla óskir.
15.12.2011
Jólalög og jólastemmning verða ríkjandi í dag á foreldramorgni í Glerárkirkju frá 10:00 til 12:00. Þetta er síðasta
samveran fyrir jól, en foreldrarmorgnar halda áfram á nýju ári. Fyrsta samvera 2012 verður fimmtudaginn 12. janúar.
14.12.2011
Við í Glerárkirkju hvetjum unga sem aldna til þess að fjölmenna á alþjóðlega jólahátíð sem verður haldin
laugardaginn 17. desember frá 14:30 til 17:00 á efstu hæðinni í Rósenborg. Hægt verður að upplifa hvernig jólin hljóma, bragðast
og hvaða hefðir tíðkast á öðrum stöðum í heiminum um jólahátíðina. Í boði verður andlitsmálning,
börnin geta búið til jólaskraut og hjálpast að við að skreyta jólatréð.
Skoða auglýsingu (PDF-skjal).
14.12.2011
Óháð og sjálfstætt vinnur Hjálparstarf kirkjunnar í þágu þeirra sem líða fátækt og
óréttlæti - utanlands og innan. Að hjálpa til sjálfshjálpar og tala máli fátækra og undirokaðra er alltaf verkefni dagsins. Að
draga fram kjör þeirra sem eiga sér ekki málsvara og ýta á aðgerðir sem breyta lífsmöguleikum þeirra, er markmið okkar.
13.12.2011
Í Glerárkirkju verður að venju fjölbreytt helgihald um jólin. Á aðfangadag verður aftansöngur kl. 18:00. Sr. Arna Ýrr
Sigurðardóttir þjónar og Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots. Miðnæturmessa verður kl. 23:00. Sr. Gunnlaugur
Garðarsson þjónar ásamt Pétri Björgvin Þorsteinssyni, djákna. Á jóladag verður
hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar og Kór Glerárkirkju syngur. Á annan dag jóla verður
fjölskylduguðsþjónusta kl. 13:00. sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni leiða stundina, börn
flytja helgileik og kór kirkjunnar leiðir söng.
13.12.2011
Í fréttum RÚV er talið niður til jóla. Þegar 12 dagar voru til jóla sýndi RÚV frá jólakortasýningu í
Glerárkirkju, en sýningin verður opin fram í janúar í kringum athafnir í kirkjunni.
Horfa á frétt á RÚV.
16.12.2011
Í ár verður jólasamvera eldri borgara föstudaginn 16. desember kl. 15:00. Níels Árni Lund, skrifstofustjóri
verður gestur samverunnar. Hann er mikilvirkur gamanvísnasöngvari og hefur gefið út geisladisk með eigin textum við þekkt lög. Einnig hefur hann
gefið út bókina Af heimaslóðum sem segir frá lífi fólksins á Melrakkasléttu auk þess sem
hann vinnur að annarri bók um sama svæði. Níels Árni mun flytja jólahugvekju auk þess sem hann mun taka lagið og flytja skemmtilegan
fróðleik.
11.12.2011
Nýverið tóku Skálholtsútgáfan og Glerárkirkja höndum saman og buðu upp á bókakaffi í Glerárkirkju þar sem
Óskar Guðmundsson sagði frá nýútkominni bók um Þórhall Bjarnarson, biskup. Þeim sem komust ekki þetta kvöld er bent á
viðtal sem Hilda Jana á N4 tók við Óskar og má skoða hér fyrir neðan.