15.10.2011
Velkomin á vef Glerárkirkju. Við, starfsfólkið í húsinu, reynum eftir því sem við höfum tök á að setja inn
fréttir og fleira um viðburði og fasta dagskrárliði í kirkjunni. Það er alltaf eitthvað sem betur má fara og gleðjumst við yfir
ábendingum á netfangið glerarkirkja@glerarkirkja.is. Umsjón með vefsíðunni hefur Sverrir Pálmason, s. 464 8803, en innihald einstakra
undirsíðna og frétta er á ábyrgð hvers starfsmanns eftir starfssviði. Við bendum sérstaklega á dagatalið
hér til vinstri á forsíðunni. Með því að smella á viðkomandi dag má lesa um þá viðburði sem eru auglýstir
þann dag.
20.10.2011
Æskulýðskór Glerárkirkju hefur nú hafið æfingar aftur og verða æfingar kórsins á fimmtudögum kl. 17:00 í
safnaðarheimilinu. Stjórnandi er Marína Ósk Þórólfsdóttir tónlistarkennari. Kórinn er ætlaður börnum í 6. bekk
og eldri. Hann kemur fram í fjölskylduguðsþjónustum í Glerárkirkju einu sinni í mánuði, auk ýmissa annarra
tækifæra.
14.10.2011
Um 30 manns sóttu umræðukvöld í Glerárkirkju sl. miðvikudagskvöld þar sem dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson flutti framsögu og
svaraði fyrirspurnum þátttakanda. Þema kvöldsins var ,,kirkjan og guðfræðin" og lá bók páfa ,,Jesús frá Nasaret" til
grundvallar umræðunni.
Lesa áfram á vef prófastsdæmisins.
12.10.2011
Á umræðukvöldum í Glerárkirkju þetta misserið er fjallað um bók páfa ,,Jesús frá Nasaret". Í þeim hluta sem
fjallað er um í kvöld segir hann meðal annars:
Eðli allra freistinga er ... að víkja Guði til hliðar vegna þess að við teljum hann
aukaatriði og lítum hreinlega á hann sem óþarfan og þreytandi í samanburði við allt það sem virðist mikilvægara til að
veita okkur lífsfyllingu. Að reisa heim við okkar eigið ljós án tengsla við Guð, að byggja á okkar eigin grunni og hafna öllum veruleika utan
við þann pólitíska og efnislega og víkja Guði til hliðar sem tálmynd - þetta er freistingin sem ógnar okkur og birtist okkur í
mörgum mismunandi myndum. Óheil siðferðileg afstaða er ær og kýr freistingarinnar. ... Hún læst líka tala fyrir sönnu raunsæi:
Það sem er raunverulegt er það sem er beint fyrir framan nefið á okkur - völd og peningar. Í samanburði verður allt sem snertir Guð
óraunverulegt, minni háttar og eitthvað sem enginn þarf á að halda. (Bls. 46).
Þátttakendur í tveggja manna tali í kvöld eru dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson og sr. Sigríður Munda Jónsdóttir. Sjá nánar á vef prófastsdæmisins.
11.10.2011
Prestar kirkjunnar hafa nú sent öllum foreldrum fermingarbarna bréf heim í pósti með upplýsingum vegna ferðalags á Löngumýri. Ef
bréfið hefur af einhverjum orsökum ekki borist þá er það einnig aðgengilegt hér fyrir neðan.
11.10.2011
Það er til marks um að fólki þyki vænt um kirkjuna sína og starfið sem þar fer fram þegar gagnrýni er komið á framfæri
um það sem betur má fara í kirkjustarfinu. Valgarður Stefánsson skrifaði í Velvakanda á dögunum og benti réttilega á að
þó að upptaka af fræðslukvöldi fari fram, megi ræðumaður ekki bara horfa í myndavélina. Bréf hans til Velvakanda má lesa
hér fyrir neðan í heild sinni.
09.10.2011
Fyrsta samræðukvöldið um trúna á Krist, guðspjöllin og nútímann var á miðvikudaginn var. Hér á vefnum má
nú hlusta á tveggja manna tal þeirra sr. Jóns Ármanns Gíslasonar, prófastur, og Jóns Vals Jenssonar, kaþólskur
guðfræðingur, um efni kvöldsins: Sagan og raunveruleikinn. Þá flutti sr. Guðmundur Guðmundsson stuttan inngang um ærlegt samtal páfa og
rabbía. Næsta miðvikudagskvöld kl. 20 halda svo sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur í Ólafsfirði, og dr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur í Reykjavík áfram með efnið: Kirkjan og guðfræðin.
Lesa áfram á vef prófastsdæmisins.
09.10.2011
Sunnudaginn 9. október er messa kl. 11:00 í Glerárkirkju. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Félagar úr Kór Glerárkirkju leiða
almennan söng. Sunnudagaskóli á sama tíma. Sameiginlegt upphaf í messu. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér sunnudagaskólann á netinu,
á veffanginu: www.barnatru.is.
06.10.2011
Fimmtudaginn 6. október 2011 mun Marína Ósk Þórólfsdóttir, nýr kórstjóri Æskulýðskórs Glerárkirkju
kynna starf kórsins í vetur og taka við skráningum. Mæting er klukkan fimm (17:00) í safnaðarsal kirkjunnar. Kórinn er opinn öllum úr
sjötta bekk og eldri.
02.10.2011
Átta krakkar sem eru virk í æskulýðsstarfi Glerárkirkju hafa þegar skráð sig í hóp þeirra sem ætla á
landsmót æskulýðsfélaga á Selfossi í lok október. Nokkrir eru enn að hugsa sig um eða eiga eftir að skila skráningarblaði.
Skila þarf skráningu og greiða staðfestingargjald í síðasta lagi fimmtudagskvöldið 6. október.