25.03.2011
Í dag, föstudaginn 25. mars mátti hlýða á áhugaverðan þátt á Rás 1 um organistann okkar ástkæra, Áskel
Jónsson. Áskell var organisti Lögmannshlíðarsóknar frá 1945 til 1987. Umsjónarmaður þáttarins var Birgir Sveinbjörnsson.
Hægt er að hlusta á þáttinn á netinu, auk þess sem þátturinn verður
endurfluttur sunnudaginn 27. mars á Rás 2 kl. 23:20.
26.03.2011
Vorhátíð KFUM og KFUK á Akureyri verður í félagsheimili þeirra í Sunnuhlíð á Akureyri laugardaginn 26. mars frá 14:00
til 16:00. Þennan dag hefst einnig skráning í allar sumarbúðir KFUM og KFUK.
23.03.2011
Mánudagskvöldin eru þjóðgildakvöld í Glerárkirkju. Framundan eru spennandi hringborðsumræður um þjóðgildin,
mánudagskvöldið 28. mars næstkomandi og hefst dagskráin kl. 20:00. Vakin er athygli á því að samantektir frá kvöldunum má finna
á vef prófastsdæmisins. Það eru allir hjartanlega velkomnir á þessi
umræðukvöld. Aðgangur er ókeypis og boðið upp á léttar kaffiveitingar í hléi.
22.03.2011
Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Félagar úr Kór Glerárkirkju leiða almennan safnaðarsöng undir stjórn Valmars Väljaots.
Barnastarf í safnaðarheimili á sama tíma, sameiginlegt upphaf.
Allir velkomnir.
22.03.2011
Sunnudaginn 27. mars og sunnudaginn 3. apríl verða haldnir fundir með foreldrum fermingarbarna í kjölfar messu kl. 11. Umræðuefni fundanna verður
tilhögun fermingarinnar, æfingar o.fl. Foreldrar geta valið hvorn fundinn sem er, eftir hentugleikum.
21.03.2011
Leikhópurinn Undrun sem hefur starfað með hléum í vetur í Glerárkirkju ætlar nú að skella sér á Vestmannsvatn um komandi
helgi og hafa gaman saman og stunda leiklist af kappi. Brottför verður frá Glerárkirkju kl. 16:00 á föstudeginum og komið heim fyrir kvöldmat á
laugardag. Umsjón með ferðinni hafa Dagný Hulda (866-9951) og Klaudia (894-7006) og gefa þær nánari upplýsingar. Athugið: Enn er hægt að
bætast í hópinn sem opinn er fyrir áttundu-, níundu- og tíundubekkinga.
21.03.2011
Þær Rakel Ása, Berglind Eir og Linda Rós komu færandi hendi í Glerárkirkju með kr. 5.317 sem þær höfðu safnað til styrktar
Hjálparstarfi kirkjunnar. Fyrir þá upphæð er til dæmis hægt að frelsa eitt þrælabarn úr ánauð. Við í kirkjunni
þökkum þeim kærlega fyrir. Nánar má fræðast um Hjálparstarf kirkjunnar á vef þeirra www.help.is.
17.03.2011
Næstkomandi mánudagskvöld, 21. mars kl. 20:00 er hófsemdin og samfélagið til umræðu á þjóðgildakvöldi. Sr. Dalla
Þórðardóttir prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi hefur kvöldið með helgistund og innleggi út
frá kristinni siðfræði um þema kvöldsins. Að helgistund lokinni er gengið í safnaðarsalinn þar sem Sigurður Guðmundsson sem situr
í Bæjarstjórn fyrir hönd Bæjarlistans mun flytja framsöguerindi. Allir velkomnir, þátttaka ókeypis.
14.03.2011
Síðustu sex ár hefur Glerárkirkja tekið á móti 56 ungmennum erlendis frá. Flest hafa stoppað stutt. Erindi þeirra hefur verið að
taka þátt í nokkurra daga verkefni á vegum Glerárkirkju eða í samstarfi við Glerárkirkju. Þau ungmenni sem hafa dvalið lengst (6 til
13 mánuði) hafa verið styrkt af Evrópu Unga Fólksins. Síðastliðið haust tók Glerárkirkja svo í
fyrsta sinn á móti BIJ-sjálfboðaliða. Hún heitir Jessica og við báðum hana að skrifa nokkur orð um
verkefnið og sýn hennar á það.