06.06.2011
Á sunnudögum vaknaði afi fyrir allar aldir. Hann var meðhjálpari, vildi hafa kirkjuna fína og fór snemma. Við amma
fórum í spariföt þó nokkru seinna og héldum til kirkju. Þegar við komum í kirkjuna var hún hrein og strokin. Hver sunnudagur var
hátíð. Upplifun mín var að við værum öll svo fín.
Lesa pistil á trú.is
31.05.2011
Glerárkirkja átti fulltrúa meðal þeirra sem sóttu Kirkjuþing unga fólksins í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi
laugardaginn 28. maí. Unnið var í fjórum hópum og kom hver hópur með eina eða fleiri ályktanir sem allar voru samþykktar (að hluta til
sameinaðar). Upptakan hér að ofan er frá þeim hluta þingsins þegar ályktanirnar voru kynntar fyrir fundinum.
27.05.2011
25 ár eru liðin frá því að leikskólinn Krógaból tók til starfa sem foreldrarekinn leikskóli í húsnæði
að Löngumýri 16 á Akureyri, en fljótlega, eða í ágúst 1989 flutti leikskólinn á neðri hæð Glerárkirkju og
hefur verið þar síðan. Í dag var mikil gleði og hátíð í leikskólanum í tilefni af afmælinu.
Starfsfólk og sóknarnefnd Glerárkirkju óskar starfsfólki, foreldrum og að sjálfsögðu öllum börnunum til hamingju með daginn.
Hér á vef Glerárkirkju má skoða nokkrar myndir af því hvernig hátíðin blasti
við okkar af svölunum á efri hæð kirkjunnar.
29.05.2011
Sunnudaginn 29. maí kl. 14:00 verður hátíðarmessa vegna 150 ára afmælis þeirrar kirkju sem nú stendur í Lögmannshlíð.
Vígðir þjónar kirkjunnar þjóna, Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum prédikar. Að messu lokinni er boðið til
messukaffis í safnaðarheimili Glerárkirkju. Allir velkomnir.
01.06.2011
Aðalfundur Kórs Glerárkirkju verður haldinn miðvikudaginn 1. júní kl. 20.30
Dagskrá.
1. Fundur settur
2. Kosning fundarstjóra og ritara
3. Fundargerð síðasta aðalfundar lesin
4. Skýrsla formanns
5. Skýrsla gjaldkera, ársreikningar lagðir fram
6. Kosning stjórnar og varamanna
7. kosning raddstjóra, nótnavarða og skoðunarmanna reikninga
8.Kaffihlé
9. Önnur mál.
24.05.2011
Á aðalsafnaðarfundi sunnudaginn 22. maí síðastliðinn fóru fram kosningar í sóknarnefnd.
23.05.2011
Á aðalsafnaðarfundi Lögmannshlíðarsóknar var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Aðalsafnaðarfundur Lögmannshlíðarsóknar haldinn í Glerárkirkju sunnudaginn 22. maí 2011 harmar þann róttæka og
ósanngjarna niðurskurð á sóknargjöldum sem orðið hefur á hinum síðustu árum. Fundurinn varar við því að frekari
niðurskurður muni koma alvarlega niður á þjónustu við alla þá aldurs- og þjóðfélagshópa sem til kirkjunnar leita og
þiggja þjónustu hennar.
Minnt er á að sóknargjöld eru félagsgjöld í eðli sínu sem renna jafnt til safnaða þjóðkirkjunnar sem og annarra
skráðra trúfélaga og standa undir grunnþjónustu þeirra og mynda þar með mikilvægan þátt í velferðaruppbyggingu
samfélagsins.
Fundurinn hvetur háttvirt alþingi til þess að sporna við því að til frekari niðurskurðar komi.
Ályktunin er send öllum alþingismönnum og afrit til fjölmiðla, ásamt fylgiskjölum sem finna má hér fyrir neðan.
22.05.2011
Þegar æðandi kraftar eldsins
úr iðrum jarðar,
þrýsta öskunni til himins
breiða hana yfir byggðirnar,
byrgja auglit sólar,
fela angan jarðar ,
og fylla vit alls sem andar,
áköllum við þig ó, Guð
um miskunn.
Þú, sem í árdaga bast höfuðskepnurnar
og breyttir óskapnaðinum í sköpun
við biðjum þig,
Kom í mætti þínum
og beisla óhemjuna,
svo að aftur verði kyrrð og friður á jörðu,
ullin verði aftur hvít
og jörðin græn
og fólkið gangi til iðju sinnar
í öruggu trausti,
til verndar þinnar
og varðveislu
í frelsaranum Jesú Kristi.
Amen.
Kristjan Valur Ingólfsson
22.05.2011
Messað verður í Glerárkirkju sunnudaginn 22. maí kl. 11:00. Prestur er sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. Kór Glerárkirkju leiðir söng
undir stjórn Valmars Väljaots. Að messu lokinni er aðalsafnaðarfundur í safnaðarsal
kirkjunnar. Venjuleg aðalfundarstörf.
14.05.2011
Vortónleikar Kórs Glerárkirkju verða haldnir laugardaginn 14. maí kl.
16.00. Stjórnandi er Valmars Väljaots og undirleikari Petra Björk Pálsdóttir. Efnisskráin er fjölbreytt blanda kirkjulegs og veraldlegs
efnis. Má þar nefna verk eins og Komm, Jesu, komm eftir Johann Sebastian Bach, Ég man hverja stund eftir Jón Kell, Thank you for the music, hið
alþekkta Abbalag eftir Benny Anderson & Björn Ulvaeus og Locus iste eftir Anton Brucner. Við fáum
góða heimsókn því Sönghópurinn Veirurnar undir stjórn Guðbjargar Tryggvadóttur mun líta við hjá okkur eftir
tónleika sem þau eru með í Hofi kl. 14.00 . Þau flytja nokkur lög af sinni efnisskrá og að lokum syngja kórarnir saman eitt lag.
Miðaverð er krónur 1.500.-
Við getum því miður ekki tekið greiðslukort
Hlökkum til að sjá ykkur!
Með kveðju frá félögum og stjórnanda Kórs Glérárkirkju:o)