26.04.2011
Vegna fermingar 30. apríl verður æfing miðvikudaginn 27. apríl kl. 15:30. Vegna fermingar 1. maí verður æfing föstudaginn 29. apríl kl. 15:30.
26.04.2011
Undirbúningur starfsins er í fullum gangi og mikill hugur í starfsfólki og sjálfboðaliðum sumarbúðanna. Einn liður í
undirbúningnum er sá að sjálfboðaliðar koma í sumarbúðirnar á vormánuðum. Þeir sinna hefðbundu viðhaldi, gera allt
klárt fyrir sumarið og bæta aðstöðuna á hverjum stað fyrir sig. Sannarlega gefandi verkefni.
22.04.2011
Dr. Hjalti Hugason flytur erindið:
Margbreytilegar birtingarmyndir þjáningarinnar
Samveran hefst með helgistund og tónlistarflutningi í kirkjunni kl. 14:00. Síðan er gengið í safnaðarsal og hlýtt á erindi Hjalta. Að
því loknu er boðið upp á kaffiveitingar og umræður. Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.
21.04.2011
,,Fátt er mikilvægara ungu fólki sem er á þeim stað í þroskaferlinu að slíta sig sem mest frá fjölskyldu sinni og
öðlast sjálfstæði, en að vera minnt á að fjölskyldan er sá staður þar sem er best að vera" segir sr. Arna Ýrr m.a. í
Skírdagspistli á trú.is
Lesa pistil á trú.is
18.04.2011
Í þessari viku verður aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar veitt degi fyrr en venjulega, þar sem fimmtudagurinn er helgidagur. Úthlutun fer því
fram á miðvikudag milli 16 og 18 í Litla húsinu. Umsóknir þurfa því að berast ekki síðar en á þriðjudag.
17.04.2011
Klaudia Migdal frá Póllandi hefur verið sjálfboðaliði í Glerárkirkju í vetur fyrir tilstilli ungmennaáætlunar
Evrópusambandsins, sem ber íslenska heitið Evrópa Unga Fólksins. Hér á eftir segir hún aðeins frá upplifun sinni. [English below]
17.04.2011
Í dag er Pálmasunnudagur - við fögnum innreið Jesú Krists í Jerúsalem. Mannfjöldinn fagnaði Jesú og margir lögðu
pálmagreinar á götuna eða sveifluðu þeim. Í hugum flestra voru pálmagreinarnar ekki bara einhverjar trjágreinar. Pálmtré voru
jafnvel talin heilög og mörgum þótti þau vera tákn um líf og sigur. Þannig minnti pálmatréið Ísraelsmenn á
sjálfstæðið og sigursælan konung þeirra.
Lesa pistil á trú.is
16.04.2011
Um helgina verða tvær fermingarmessur.
14.04.2011
Á fimmtudagsmorgnum er líf og fjör í safnaðarsal Glerárkirkju an þá hittast foreldrar með ungana sína. Nú fer senn að
líða að lokum starfsins á vorönn, en þó eru nokkrar samverur eftir og munum við meðal annars fagna 20 ára afmæli foreldramorgna.
16.04.2011
Kyrrðardagur verður á Möðruvöllum í Hörgárdal laugardaginn 16. apríl kl. 10-17. Þátttakendur eru hvattir til að klæða
sig eftir veðri svo njóta megi gönguferða í náttúrunni, hvort sem fólk velur að ganga eitt sér eða í hóp. Umsjón:
Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur á Möðruvöllum og sr. Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur.
Kyrrðardagurinn er þátttakendum að kosnaðarlausu. Fólk er hvatt til að skrá sig sem fyrst þar sem fjöldi þátttakenda er
takmarkaður. Skráning á srslara@ismennt.is eða í síma 462 1963.