20.05.2012
Á sunnudagskvöldið verður guðsþjónusta kl. 20. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar og Krossbandið leiðir söng.
Mótorhjólafólk tekur þátt í stundinni með ritningarlestrum og tónlistarflutningi. Mótorhjólafólk hvatt til að koma til
kirkju á hjólum sínum. Allir velkomnir.
20.05.2012
Næsta sunnudag verður messa í Lögmannshlíðarkirkju kl. 14. Sr Gunnlaugur Garðarsson þjónar, Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn
Valmars Väljaots. Allir velkomnir.
16.05.2012
Sunnudaginn 20. maí kl. 20 verður kvöldguðsþjónusta í Glerárkirkju. Hún verður með þátttöku
mótorhjólafólks sem mun lesa ritningarlestra og flytja tónlist. Sr. ARna Ýrr Sigurðardóttir þjónar og Krossbandið leiðir söng.
Allir eru velkomnir og er mótorhjólafólk hvatt til að fjölmenna á hjólum til guðsþjónustunnar.
15.05.2012
Þau sem ekki áttu heimangengt síðasta sunnudag geta nú lesið prédikun sr. Örnu Ýrrar Sigurðardóttur á trú.is en
hún sagði m.a.:
Jesús gerði sér grein fyrir margbreytileika okkar mannanna. Hann dró fólk ekki í dilka, heldur mætti hverjum og einum
þar sem hann eða hún var.„Hvað viltu að ég geri fyrir þig?“ segir hann oftar en einu sinni þegar hann mætir fólki.
Lesa prédikun á trú.is.
17.05.2012
Á uppstigningardag verður messa kl. 11 í Glerárkirkju. Sr. Arna Ýrr þjónar, en sr. Haukur Ágústsson mun prédika. Karlakór
Akureyrar- Geysir, syngur undir stjórn Valmars Väljaots. Að messu lokinni verður boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimilinu.
Allir velkomnir.
13.05.2012
Á vef þjóðkirkjunnar er að finna upplýsingasíðu varðandi vígslubiskupskjör. Smellið hér.
10.05.2012
Kirkjuráð hefur nú skipað í nýja æskulýðsnefnd. Í henni eiga sæti fulltrúar úr öllum prófastsdæmum
ásamt aðilum frá ÆSKÞ og Biskupsstofu. Formaður nefndarinnar er Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju.
Sjá nánar á kirkjan.is.
10.05.2012
Það verður mikið um dýrðir hjá "afmælisbarninu" og skólabænum Akureyri 7.–21. maí þegar nemendur í leik- og
grunnskólum bæjarins sýna afrakstur vetursins á Uppskeruhátíð leik- og grunnskólanna. Verkin verður að finna víðs vegar um
bæinn eða á hátt í tuttugu stöðum og má sem dæmi nefna að leikskólinn Tröllaborgir sýnir á Bláu
könnunni, Oddeyrarskóli í Flugstöðinni, leikskólinn Sunnuból sýnir í Glerárkirkju og
Glerárskóli sýnir í Lystigarðinum og á Icelandair Hotel.
Sjá nánar á akureyri.is.
09.05.2012
Messa kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar, Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng. Allir velkomnir.
09.05.2012
Jafnréttisstofa, Rannsóknamiðstöð gegn ofbeldi og Háskólinn á Akureyri bjóða upp á ráðstefnu um birtingamyndir
ofbeldis-afleiðingar og úrræði í HA föstudaginn 11. maí nk. Dagskrá ráðstefnunnar er metnaðarfull en leitast var við að fá
framsögufólk og sérfræðinga af ólíkum sviðum samfélagsins til að fjalla um aðkomu þeirra, rannsóknir og helstu
þætti sem skoða þarf til að auka þekkingu og úrræði í þessum málaflokki.
Sjá nánar á http://www.unak.is/radstefnur.