01.04.2012
Sunnudaginn 1. apríl 2012 er fjölskylduguðsþjónusta í Glerárkirkju kl. 11:00. Boðið er upp á barnastarf í safnaðarsal á
sama tíma, sameiginlegt upphaf í guðsþjónustunni. Það eru börn úr barna- og æskulýðskórum Glerárkirkju sem
leiða sönginn í guðsþjónustunni undir stjórn Valmars Väljaots. Boðið er upp á hressingu að samveru lokinni.
25.03.2012
Á héraðsfundi Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis sem haldinn var í safnaðarsal Akureyrarkirkju laugardaginn 24. mars 2012 var samþykkt
að gera átak í æskulýðsmálum á prófastsdæmisvísu árið 2013. Til þess að sinna því verkefni
verður ráðinn æskulýðsfulltrúi í hálft starf í fimm mánuði frá 1. janúar.
Sjá nánar á vef prófastsdæmisins.
28.03.2012
Hjónin í Laufási, sr. Bolli Pétur Bollason og Sunna Dóra Möller, guðfræðingur, halda erindi í safnaðarsal Glerárkirkju
miðvikudagskvöldið 28. mars kl. 20:00 sem nefnist: ,,Vegurinn framundan, nútíminn og framtíðin.” Fyrirlesturinn er hluti af umræðukvöldum
prófastsdæmisins sem haldin hafa verið í vetur í samstarfi við Glerárkirkju og hefst dagskráin kl. 20:00.
24.03.2012
Talningu í biskupskjöri lauk í gær. Þar sem enginn var með hreinan meirihluta verður kosið aftur á milli tveggja efstu. Sr. Agnes M.
Sigurðardóttir og sr. Sigurður Árni Þórðarson hlutu flest atkvæði og ljóst að annað þeirra verður næsti biskup.
22.03.2012
Kynslóðir mætast heitir samstarfsverkefni Öldrunarheimila Akureyrar og Menntaskólans á Akureyri. Það er hluti af lífsleikniáfanga
hjá nemendum fjórða bekkjar í MA og gengur út að leiða unga og aldna saman. Verkefninu sem er orðið sjö ára var ýtt úr
vör af Glerárkirkju á sínum tíma að fyrirmynd úr Skálholtsskóla.
25.03.2012
Messa kl. 11. Boðunardagur Maríu. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar, Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng. Allir velkomnir.
Barnastarf í safnaðarheimili á sama tíma, sameiginlegt upphaf í messu.
24.03.2012
Karlakór Akureyrar-Geysir stendur fyrir söngmótinu “Hæ! Tröllum” laugardaginn 24. mars. Nafnið er fengið úr gömlu þekktu
sænsku lagi, sem flestir karlakórar hafa sungið. Tónleikarnir verða haldnir í Glerárkirkju og hefjast kl. 16:00. Aðgangseyrir er kr. 2.000,-
20.03.2012
Í apríl, maí og júní 2012 geta foreldrar mætt í klukkustundarlanga dagskrá í safnaðarsal Glerárkirkju með
grunnskólabörnin sín. Dagskráin er opin fyrir einn bekk úr grunnskóla í senn. Þar sér Pétur Björgvin Þorsteinsson,
djákni í Glerárkirkju, um hópeflisleiki sem ætlað er að hjálpa krökkunum úr bekknum og foreldrum þeirra að kynnast.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Björgvin djákni í síma 864 8451 eða á netfangið petur@glerarkirkja.is
19.03.2012
Í pistli á trú.is skrifar Jóhann H. Þorsteinsson, sviðsstjóri æskulýðsstarfs KFUM og KFUK um Hólavatn og segir m.a.:
Til að kanna hug foreldra og barna til Hólavatns var send skoðanakönnun sem foreldrar voru hvattir til að svara í gegnum netið
með reynslu barns síns í huga. Það ánægjulega við könnunina var að svörin sem bárust voru jákvæð. 84,7 % svarenda
fullyrtu að barninu þeirra hefði líkað dvöl á Hólavatni mjög vel og 86,4 % töldu mjög eða frekar líklegt að þau myndu
senda barnið sitt aftur á Hólavatn.
Lesa pistil á trú.is - Skoða
kynningarmyndband
19.03.2012
Minnt er á, að hér á vef Glerárkirkju hafa nú um nokkurt skeið verið aðgengilegar upplýsingar um hver fermist hvenær í
Glerárkirkju. Ábendingar berist til sr. Örnu á netfangið arna@glerarkirkja.is
Skoða lista yfir fermingar 2012.