11.03.2012
Það hefur ekki farið fram hjá þeim sem fylgjast með vef Glerárkirkju eða sækja fræðslukvöldin í Glerárkirkju að
við hér erum að taka örlítil skref í átt að tæknivæðingu þess sem við miðlum. Það er ekki úr vegi að
staldra við í örstutta stund og velta möguleikunum fyrir sér. Til þess er eftirfarandi erindi sr. Árna Svans Daníelssonar vel til fallið:
Samskiptabyltingin og kirkjan from Árni Svanur Daníelsson on Vimeo.
11.03.2012
Síðustu daga hefur Biskupsstofa í samstarfi við prófastsdæmin staðið fyrir fundum um land allt, þar sem að biskupsefnum hefur gefist kostur
á að kynna sig og sín málefni. Fundaröðinni lauk með kynningarfundi laugardaginn 10. mars 2012 í safnaðarheimili Glerárkirkju. Kjörmenn
annars vegar úr Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi og hins vegar úr Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi voru boðaðir
sérstaklega til fundarins. Eins og gefur að skilja höfðu ekki allir kjörmenn af jafn víðfeðmu svæði tök á því að koma
til Akureyrar þennan laugardag. Því er brugðið hér á það ráð að birta upptökur frá fundinum að beiðni
prófasta. Lögð var áhersla á að birta upptökurnar sem fyrst og því eru þær birtar óunnar/óklipptar.
Sjá nánar á vef prófastsdæmisins.
10.03.2012
Upptökur frá kynningarfundi með biskupsefnum í Háteigskirkju þann 2. mars síðastliðinn eru komnar á vefinn um biskupskjör. Annars vegar er um að ræða hljóðupptöku af fundinum í heild (um 2,5 klst á lengd) og hins vegar sjónvarpsupptökur af fundinum sem hafa verið klipptar til eftir efni spurninganna. Síðasti kynningarfundurinn verður
laugardaginn 10. mars 2012 í Glerárkirkju og hafa kjörmenn verið boðaðir til þess fundar sem hefst kl. 13:00. Sjá nánar á kirkjan.is.
09.03.2012
Töluvert er um liðið síðan hugmyndir vöknuðu um að reist skyldi kirkja í Glerárhverfi. Mörgum þótti það orðið
tímabært, þar sem í Lögmannshlíðarsókn var aðeins ein kirkja, Lögmannshlíðarkirkja, sem fyrir löngu var orðin allt of
lítil og auk þess komin nokkuð til ára sinna. Herra Pétur Sigurgeirsson, biskup, tók fyrstu skóflustunguna fyrir byggingu Glerárkirkju 31.
maí 1984. Fyrsti hluti Glerárkirkju var tekinn í notkun 15. febrúar 1987 en kirkjan vígð á öðrum sunnudegi í aðventu 1992. Hér
á vef Glerárkirkja eru nú birtar nokkrar myndir frá byggingarárum Glerárkirkju í tilefni af því að á árinu er 20
ár liðin frá vígslu kirkjunnar.
Myndir:
Byggingasaga 1. hluti
Byggingasaga 2. hluti
Byggingasaga 3. hluti
08.03.2012
Miðvikudagskvöld eru fræðslukvöld í Glerárkirkju. Á vorönn 2012 er þemað ,,Vegur trúarinnar". Þann 7. mars 2012 hélt
sr. Gunnlaugur Garðarsson, sóknarprestur í Glerárkirkju erindi sem nefndist ,,Guðrækni - að biðja og iðja" og byggði hann það m.a.
á orðum Jesú í Fjallræðunni. Hér á vefnum er nú hægt að skoða upptöku af erindi hans:
08.03.2012
Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju og Evrópufræðingur, flutti erindi um hógværð og handleiðslu á
samræðukvöldi í Glerárkirkju 29. febrúar 2012. Það var hluti af dagskránni Vegur trúarinnar.
Textinn sem lagt var út frá var Matteus 5.5-6: "Sælir eru hógværir því að þeir munu landið erfa...". Spurningarnar sem glímt var
við voru: Hvað er átt við með hinum hógværu í landinu? Hvert er siðgæði fjallræðunnar og spekirita Gamla testamentisins? Hvaða
afleiðingar hefur það fyrir líf manns að láta Guð leiða sig? Horfa má á upptöku frá kvöldinu hér á vefnum:
08.03.2012
Nú eru komnir inn listar með nöfnum fermingarbarna og fermingardegi komnir inn og þið getið nálgast þá hér
Ef þið rekist á villur, vinsamlega sendið póst á netfangið arna@glerarkirkja.is til leiðréttingar.
08.03.2012
Djáknarnir í Hallgrímskirkju og Glerárkirkju birta í dag sameiginlegan pistil á trú.is sem fjallar um þátttöku ungs fólks
í kirkjunni. Þau skrifa m.a.:
Í sóknarnefndum víða um land er að finna fólk sem stendur af heilum hug á bak við barna- og
æskulýðsstarf kirkjunnar. Fyrir það ber að þakka og hrósa. En okkar álit er að nú sé tími til að kirkjan taki skref til
viðbótar. Við teljum ekki nóg að fjallað sé um unga fólkið. Okkar álit er að nú sé tími til kominn að sýna
unga fólkinu að það er traustsins vert og skapa því rými, gefa þeim tækifæri til að axla ábyrgð.
Lesa pistil á trú.is.
07.03.2012
Samræðukvöld prófastsdæmisins halda áfram í Glerárkirkju. Miðvikudagskvöldið 7. mars er röðin komin að þeim
hjónum, sr. Gunnlaugi Garðarssyni, sóknarpresti í Glerárkirkju og dr. Sigríði Halldórsdóttur, prófessor við Háskólann
á Akureyri. Þema kvöldsins er: ,,Guðrækni, að biðja og iðja." Dagskráin hefst kl. 20:00. Allir velkomnir - heitt á könnunni.
11.03.2012
Messa kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar fyrir altari, sr. Þórir Jökull Þorsteinsson prédikar. Kór Glerárkirkju syngur undir
stjórn Valmars Väljaots.
Barnastarf í safnaðarheimili á sama tíma, sameiginlegt upphaf í messu. Allir velkomnir.