05.04.2012
Helgihald í dymbilviku og um páska hefst í Glerárkirkju með kvöldmessu á Skírdagskvöld kl. 20:00. Á vef Glerárkirkju má
nú finna upplýsingar um helgihaldið næstu daga. Þátttaka í helgihaldi páska markar hápunkt í messusókn fermingarbarna og
foreldra þeirra á vorönn 2012 í aðdraganda ferminga. Það er sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir sem
leiðir kvöldmessuna á Skírdagskvöld. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots. Allt helgihald í dymbilviku og um páska
í Glerárkirkju er öllum opið.
06.04.2012
Píslarsaga Krists verður lesin í messu á Föstudaginn langa í Glerárkirkju. Messan hefst kl. 11:00. Þar minnumst við krossdauða Jesú
Krists, sem lét lífið fyrir okkur, syndugar manneskjurnar. Það er sr. Gunnlaugur Garðarsson sem þjónar í þessari messu. Kór
Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots.
06.04.2012
,,Grundvöllur gildanna og gáta lífsins" er yfirskrift erindis sem Ágúst Þór Árnason, aðjunkt við
Háskólann á Akureyri og deildarformaður lagadeildar flytur á fræðslu- og íhugunarstund í Glerárkirkju á Föstudaginn langa
kl. 14:00. Í upphafi stundarinnar er stutt helgistund. Boðið er upp á kaffiveitingar í safnaðarsal að erindi loknu og fólk hvatt til að taka
þátt í umræðum. Umsjón með stundinni hefur sr. Gunnlaugur Garðarsson.
07.04.2012
Kristin kirkja um alla veröld fagnar upprisu Krists á páskum. Víða um heim koma kristnir einstaklingar saman aðfaranótt páskadags, hugleiða og
upplifa sigur lífsins, vonina sem vaknar í myrkrinu. Í Glerárkirkju leiðir sr. Gunnlaugur Garðarsson páskavöku sem hefst kl. 23:00. Sér við
hlið hefur hann Valmar Väljaots og Kór Glerárkirkju. Allir velkomnir.
08.04.2012
Við tökum daginn snemma í Glerárhverfi á páskadag því að það er messa í Glerárkirkju klukkan níu um morguninn og
léttur morgunverður í boði á eftir. Það er sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir sem stjórnar hátíðarmessunni þennan
morgun og hefur Kór Glerárkirkju ásamt Valmari Väljaots sér við hlið. Þetta verður fögur morgunstund sem enginn ætti að láta
fram hjá sér fara. Gleðilega páska!
09.04.2012
Að kvöldi annars dags páska, mánudaginn 9. apríl er kvöldguðsþjónusta í Glerárkirkja kl. 20:00. Þar leiðir sr. Arna
Ýrr Sigurðardóttir létta lofgjörðarstund þar sem Krossbandið, þau Snorri, Ragga, Stebbi og Haukur, sjá um tónlistina. Mikill
söngur, hugljúf stund þar sem upprisugleðin er í fyrirúmi. Allir hjartanlega velkomnir.
04.04.2012
Djáknarnir í Hallgrímskirkju og Glerárkirkju eiga pistil í dag á trú.is þar sem sóknarnefndir og allt kirkjunnar fólk er hvatt til
að styrkja æskulýðsstarfið. Þau segja meðal annars:
Það er því sérstakt þakkarefni að víða má finna sóknarnefndir sem leggja sig fram um að styðja
við og standa sérstakan vörð um faglegt æskulýðsstarf.
Lesa pistil á trú.is.
31.03.2012
Kór félags eldri borgara Í FÍNU FORMI verður með TÓNLEIKA í Glerárkirkju, laugardaginn 31. mars kl. 16:00. Einsöngur: Aðalsteinn
Jónsson. Stjórnandi og meðleikari: Valmar Väljaots. Miðaverð kr. 1500. ATH: Ekki er tekið við greiðslukortum.
30.03.2012
Safnaðarblað Glerárkirkju er komið út og hefur því verið dreift í öll hús í sókninni. Einnig er hægt að
nálgast blaðið í kirkjunni. Í blaðinu er að finna upplýsingar um helgihald í Glerárkirkju um páskana sem og yfirlit vegna ferminga
í apríl og maí.
28.03.2012
Nú fer í hönd páskasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar. Að þessu sinni söfnum við fyrir fjölbreyttri aðstoð á Íslandi.
Hjálparstarfið veitir faglega ráðgjöf og hjálp til sjálfshjálpar. Valgreiðslur að upphæð 2.400 krónur verða næstu
daga sendar í heimabanka landsmanna, einnig er hægt að gefa framlag á framlag.is, í söfnunarsíma 907 2002 eða leggja inn á söfnunarreikning:
0334-26-886 kt. 450670-0499.