14.11.2011
Glerárkirkja, í samstarfi við Skóladeild Akureyrarbæjar og Námsgagnastofnun stendur fyrir Kompásnámskeiði fyrir kennara á Akureyri
haustið 2011. Hverjum grunnskóla er boðið að senda þrjá kennara á námskeiðið,
en það hentar sérstaklega kennurum á unglingastigi. Skráning er hjá skólastjórum í viðkomandi skólum.
09.11.2011
Miðvikudagskvöldið 9. nóvember kl. 20:00 halda umræðukvöld prófastsdæmisins áfram hér í Glerárkirkju. Að þessu
sinni snýst tveggja manna talið um trú, þekkingu og heimspeki. Þátttakendur eru sr. Gunnlaugur Garðarsson sóknarprestur í Glerárkirkju og
dr. Hjalti Hugason, prófessor við guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ. Að kaffihléi loknu eru almennar umræður. Allir
velkomnir, aðgangur ókeypis.
Sjá nánar á vef prófastsdæmisins.
07.11.2011
Allt frá árinu 2006 hefur Glerárkirkja staðið fyrir ýmsum verkefnum sem tengjast mannréttindafræðslu, en það ár réð
kirkjan Ölmu Guðnadóttur og Daníel Müller tímabundið til þess að fara í sjöundubekki í skólum bæjarins með
mannréttindafræðslu. Verkefnin sem notuð voru, voru byggð á Kompás, handbók Evrópuráðsins í mannréttindafræðslu
með ungu fólki.
Á trú.is í dag má lesa pistil þessu tengdan, hann nefnist: Kompás í
kirkjustarfi.
06.11.2011
Á allra heilagra messu nk. sunnudag verður messa að venju kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar, félagar úr Kór kirkjunnar leiða söng.
Barnastarfið er á sama tíma í safnaðarheimili, sameiginlegt upphaf í messu. Allir velkomnir.
28.10.2011
500 unglingar og leiðtogar eru samankomnir á landsmóti æskulýðsfélaga kirkjunnar sem var sett á Selfossi fyrr í kvöld. Karl
Sigurbjörnsson, biskup Íslands, brá á leik við setningu landsmotsins og þakkaði unglingunum fyrir gott starf og góðan hug: „Nú veit
ég af góðverkahelgi landsmótsins. Þar munuð þið leggja mikið af mörkum til þeirra sem treysta á aðstoð. Ég veit
að hérna inni eru mörg gullhjörtu, sem bera umhyggju fyrir öðrum og láta gott af sér leiða.“' Meðal þátttakenda eru 12 ungmenni
og 2 leiðtogar úr Glerárkirkju ásamt Pétri Björgvini djákna Glerárkirkju.
Sjá nánar á kirkjan.is
28.10.2011
15 manna hópur leggur af stað í dag klukkan ellefu frá Glerárkirkju. Ferðinni er heitið á landsmót æskulýðsfélaga
á Selfossi sem hefst í kvöld en alls er búist við um 500 þátttakendum. Undirbúningur hjá hópnum úr Glerárkirkju hefur
staðið í nokkurn tíma, m.a. hafa tvær stúlkur úr hópnum æft stíft fyrir hæfileikakeppnina þar sem þær munu flytja
söngatriði. Þá hittist hópurinn á dögunum til þess að sauma búninga, enda búningaball á dagskránni á
laugardagskvöldinu og verðlaunum heitið fyrir flottustu búningana. Nokkrar mömmur og ein amma var fengin með í saumaskapinn og aldeilis glatt á
hjalla.
Skoða myndir frá búningasaumaskapnum.
25.10.2011
Það var um miðjan júlí í sumar. Þau komu göngumóð í Glerárkirkju, herra og frú Edge. Höfðu gengið alla
leið frá Oddeyratanga. Þau voru farþegar á skemmtiferðaskipinu Aurora sem lá við bryggju. Það fyrsta sem hann sagði eftir að hafa
heilsað mér var: ,,Það er mikið mál að þrífa þessa kirkju."
24.10.2011
Sr. Guðmundur Guðmundsson skrifar:
Hvað er það sem gerir þér erfitt fyrir með bænina? Það má ekki fara fyrir okkur eins og fyrir
manninum sem var að læra að hjóla í húsagarði. Hann sá stein á planinu og var svo upptekinn af því að hjóla ekki á
hann að það endaði með því að hann rakst á steininn og féll um koll því að öll athygli hans var á vandamálinu.
Vandinn er til að varast hann en listin að biðja er jafnvægislist sem við þurfum að ná tökum á.
Lesa áfram á trú.is.
26.10.2011
Þessar vikurnar standa yfir umræðukvöld í Glerárkirkju á vegum prófastsdæmisins um trúna á Krist, guðspjöllin og
nútímann. Hvert umræðukvöld hefst á tveggja manna tali um ákveðið þema. Miðvikudagskvöldið 26. október er röðin
komin að sr. Örnu Ýrr Sigurðardóttur og sr. Örnólfi Ólafssyni og ræða þau um bókmenntir og listir. Til grundvallar
umræðunni er lögð bók páfa ,,Jesús frá Nasaret".
Lesa nánar um fræðslukvöldin á vef prófastsdæmisins.
25.10.2011
ATHUGIÐ: Vegna þess að það er vetrarfrí í skólum mánudaginn 24. okt. og þriðjudaginn 25. okt. verður engin fermingarfræðsla
vikuna 24. til 28. október. Nánari upplýsingar gefa prestar kirkjunnar, sr. Gunnlaugur og sr. Arna.