17.02.2011
Þessar vikurnar fer fram umræða um þjóðgildin á mánudagskvöldum í Glerárkirkju. Síðastliðið
mánudagskvöld var rætt um hugtökin ábyrgð og frelsi. Framsögumaður var Baldur Dýrfjörð frá Sjálfsstæðisflokknum, en
sr. Svavar A. Jónsson hóf kvöldið með helgistund þar sem hann ræddi um hugtökin í hugleiðingu sinni.
Á vef Eyjafjarðarprófastsdæmis má nú lesa samantekt frá kvöldinu.
11.02.2011
Áhugasömum er bent á að nú má nálgast myndbandsupptöku af fyrirlestri dr. Péturs Péturssonar um Matthías Jochumsson og andlegt
líf á Akureyri á vef AkureyrarAkademíunnar.
11.02.2011
Þjóðgildakvöldin, umræðukvöld um þjóðgildin og kristna siðfræði halda áfram í Glerárkirkju næstkomandi
mánudagskvöld 14. febrúar og hefst dagskráin kl. 20:00. Framsögumaður er Baldur Dýrfjörð frá Sjálfsstæðisflokknum.
Helgistund kvöldsins er í umsjón sr. Svavars Alfreðs Jónssonar.
Sjá nánar á vef prófastsdæmisins.
09.02.2011
Við hér í Glerárkirkju bendum fólki á fræðslumynd sem nefnist Vísindakirkjan - Sannleikurinn um lygina sem verður sýnd á
RÚV kl. 22:15 í kvöld. Hér er um heimildamynd um Vísindakirkjuna og aðferðirnar sem notaðar eru til þess að lokka fólk í hana og
halda því þar.
08.02.2011
Á vef prófastsdæmisins má nú finna stutta samantekt frá fyrsta umræðukvöldinu um þjóðgildin.
Lesa áfram á vef prófastsdæmisins.
07.02.2011
Í kvöld, mánudagskvöldið 7. febrúar er fyrsta af átta umræðukvöldum um þjóðgildin sem verða í Glerárkirkju
í febrúar og mars. Framsögumaður kvöldsins er Gunnar Hersveinn, höfundur bókarinnar ÞJÓÐGILDIN.
Lesa má nánar um kvöldin á vef
prófastsdæmisins, og einnig pistil á trú.is.
07.02.2011
Ungt fólk úr æskulýðsfélaginu Glerbroti var meðal þátttakenda á æskulýðsmóti sem var haldið í
Brúarásskóla á Fljótsdalshéraði, á vegum Æ.S.K.A., Æskulýðssambands kirkjunnar á Austurlandi og ÆSKEY,
Æskulýðssambands Eyjafjarðarprófastsdæmis. Um 90 unglingar á aldrinum 13 -16 ára mættu og komu þau af svæðinu frá Akureyri
til Breiðdalsvíkur ásamt rúmlega 20 leiðtogum, prestum og djáknum.
06.02.2011
Næstkomandi sunnudag, 6. febrúar munu fermingarbörn úr Glerárskóla taka virkan þátt í helgihaldinu með upplestri og leikrænni
tjáningu. Mæting til undirbúnings er kl. 10:00.
06.02.2011
Sunnudaginn 6. febrúar er kvöldmessa kl. 20:30. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar, félagar úr Kór Glerárkirkju leiða almennan söng.
Allir velkomnir.
06.02.2011
Sunnudaginn 6. febrúar er fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar ásamt Pétri Björgvin Þorsteinssyni
djákna. Barnakór Glerárkirkju syngur undir stjórn Hjördísar Evu Ólafsdóttur. Fermingarbörn taka þátt í helgileik.
Barnastarf fyrir yngri börnin er í safnaðarheimili á sama tíma. Sameiginlegt upphaf. Allir velkomnir.