10.08.2009
,,Kirkjan vill með guðsþjónustu sinni, fræðslu og kærleiksþjónustu vera tákn, verkfæri og farvegur fyrir samfélagið
við Krist þar sem manngildi og jafnrétti allra jarðar barna er í hávegum haft, minnug þess að Gullna Reglan og Litla Biblían, orð Jesú,
fela í sér jafnréttishugsjón." skrifar Pétur Björgvin djákni í Glerárkirkju m.a. í pistli dagsins á trú.is
Lesa pistil.
23.07.2009
Samkvæmt lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum nr. 70/2009 lækka sóknargjöld þó nokkuð en fyrstu sex
mánuði ársins 2009 voru þau 855 kr. á mánuði fyrir hvern einstakling eldri en 16 ára. Þann 1. júlí síðastliðinn
lækkuðu þau í 811 kr. og þann 1. janúar 2010 munu þau lækka enn frekar, eða í 767 kr. á hvern einstakling eldri en 16 ára.
23.07.2009
6 ungmenni úr Glerárkirkju munu taka þátt í ungmennasamskiptaverkefni í Póllandi í ágúst. Fararstjóri er Pétur
Björgvin Þorsteinsson, djákni. Fréttabréf með dagskrá og ýmsum upplýsingum er nú aðgengilegt á netinu.
27.06.2009
Fræðslusetur kirkjunnar á Löngumýri í Skagafirði í samvinnu við Krabbameinsfélag Skagafjarðar og Dug félag aðstandenda
krabbameinssjúkra í Skagafirði bjóða til hvíldardvalar fyrir þá sem misst hafa maka sinn, dagana 12. - 17. júlí 2009.
Sjá nánar á vef
Eyjafjarðarprófastsdæmis.
26.06.2009
Kvöldmessa verður í Glerárkirkju kl. 20:30. Félagar úr vélhjólaklúbbnum ,,Trúboðarnir" lesa ritningarlestra. Sr. Gunnar
Sigurjónsson flytur hugleiðingu. Félagar úr Kór Glerárkirkju syngja og leiða söng. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar fyrir altari.
Organisti er Hjörtur Steinbergsson. Kaffiveitingar í safnaðarsal að athöfn lokinni. Allir velkomnir.
16.06.2009
Messað er í Glerárkirkju sunnudaginn 21. júní kl. 20.30. Prestur er sr. Guðmundur Guðmundsson. Félagar úr Kór Glerárkirkju syngja
undir stjórn Hjartar Steinbergssonar organista. Sungnir verða sálmar nr. 593, 750, 354 og 469.
29.05.2009
Fermingarmessa verður laugardaginn 30. maí kl. 13:30. Sr. Gunnlauguar Garðarsson og sr. Arnaldur Bárðarson þjóna. Félagar úr Kór
Glerárkirkju leiða söng. Organisti: Hjörtur Steinbergsson. Á Hvítasunnudag, sunnudaginn 31. maí kl. 11:00 verður hátíðarmessa kl.
11:00. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Einsöngur: Óskar Pétursson tenór. Kór Glerárkirkju syngur. Organisti: Hjörtur Steinbergsson.
Vinsamlegast athugið að reglubundið vikustarf kirkjunnar utan helgihalds um helgar er nú komið í sumarfrí.
13.05.2009
Á vef Þjóðkirkjunnar er að finna viðtal við Pétur Björgvin Þorsteinsson djákna í Glerárkirkju þar sem hann segir
frá nýútkominni bók sinni: ,,Við þurfum að kenna unga fólkinu okkar að takast á við fjölbreytilegan veruleika, hjálpa
þeim að verða forvitin og læra að takast á við það sem er framandi."
Sjá nánar á vef Þjóðkirkjunnar.
10.05.2009
Vorhátíð Glerárkirkju var haldin í dag og þótti þeim sem tjáðu sig við starfsfólk kirkjunnar hún hafa verið
einstaklega vel heppnuð. Reikna má með að jafnvel 500 manns hafi verið á kirkjulóðinni þegar mest lét. Á http://www.flickr.com/photos/glerarkirkja/ er hægt að skoða nokkrar myndir af hátíðinni.
05.05.2009
Vorhátíð barnastarfs Glerárkirkju verður haldin sunnudaginn 10. maí næstkomandi og hefst hún með
fjölskylduguðsþjónustu kl. 11:00 þar sem Barnakór Glerárkirkju og Æskulýðskór Glerárkirkju koma fram undir stjórn
Ástu Magnúsdóttur tónmenntakennara. Sérstakur gestur dagsins er Magni Ásgeirsson, undirleik annast Valmar Väljaots en sr. Arnaldur og Pétur
djákni þjóna við athöfnina.
Eftir stundina í kirkjunni tekur við fjölbreytt dagskrá, börnunum er boðið að fara stuttan hring í hestakerru, hoppukastalarnir eru
á sínum stað, boðið verður upp á kassaklifur, félagar úr Æskulýðsfélaginu Glerbrot sýna brúðuleikrit,
grillaðar pylsur og meðlæti á staðnum og svona mætti lengi telja.
Fjölmennum og eigum saman góða stund í kirkjunni og við kirkjuna. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.