Fréttir

Barnastarf og Messa sunnudaginn 12. október kl. 11.00

Barnastarf og messa verður í Glerárkirkju sunnudaginn 12. október kl. 11.00 Prestur er sr Jón Ómar Gunnarsson. Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng. Allir velkomnir.

Fræðslukvöld: Leiðsögn um Nýja testamentið

Nú eru fræðslu- og umræðukvöldin að hefjast miðvikudaginn 8. október kl. 20 hér í Glerárkirkju. Í haust verður umfjöllin um helgirit kristninnar, Nýja testamentið. Dregnar verða fram grundvallarhugmyndir helstu rita Nýja testamentisins. Fjallað um höfunda, stund og stað ritanna, þýðingu þeirra fyrir kristna söfnðui og bænalíf. Fyrsta kvöldið fáum við nýjatestamentisfræðinginn dr. Clarence Glad til að fjalla um Nýja testamentið og vanda túlkunarinnar.

Sunnudagur 5. október

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar ásamt Sunnu Kristrúnu Gunnlaugsdóttir, djákna. Barna og æskulýðskór kirkjunnar leiðir almennan söng. Allir velkomnir. Kvöldmessa kl. 20:30. Sr. Gunnlaugur Garðarsson predikar og þjónar fyrir altari. Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng undir stjórn Valmar Väljaots.

Hádegissamveran miðvikudag 1. október kl. 12.00

Hádegissamvera verður í Glerárkirkju miðvikudaginn 1. október kl. 12.00 Léttur hádegisverður á vægu verði að athöfn lokinni. Allir hjartanlega velkomnir.

Sunnudagur 28. september kl. 11.00

Messa og Barnastarf kl. 11.00 Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir boðin velkomin til þjónustu og sett í embætti djákna af sr. Jóni Ármani Gíslasyni, prófasti. Sr. Jón Ómar Gunnarsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Gunnlaugi Garðarssyni sóknarpresti. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjón Valmars Väljaots. Allir velkomnir.

Hádegissamvera 24. september kl. 12.00

Hádegissamvera verður í Glerárkirkju miðvikudaginn 24. september kl. 12.00 Léttur hádegisverður verður í boði á vægu verði að athöfn lokinni. Allir hjartanlega velkomnir.

Messa í Glerárkirkju sunnudaginn 21. september kl. 11.00

Messa verður í Glerárkirkju sunnudaginn 21. september kl. 11.00 Prestur: Sr. Gunnlaugur Garðarsson. Sameiginlegt upphaf í barnastarfi. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. Allir velkomnir.

samvera fyrir eldri borgara í Glerárkirkju fimmtudaginn 18 september kl. 15.00

Fysta eldri borgara samveran haustsins verður í Glerárkirkju fimmtudaginn 18 september kl. 15.00. Nýr prestur í Glerárkirkju. Sr. Jón Ómar Gunnarsson kynnir sig. Sætaferðir verða frá Lögmannshlíð og Lindarsíðu. Allir hjartanlega velkomnir.

Messa í Glerárkirkju sunnudaginn 14. september kl. 11.00

Messað verður í Glerárkirkju sunnudaginn 14 . september kl. 11.00. Prestur: Sr Jón Ómar Gunnarsson. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. Allir velkomnir.

Minningarstund vegna fósturláta

Minningarstund vegna fósturláta verður haldin í Höfðakapellu á Akureyri þriðjudaginn 16. september kl. 16.30. Minningarstundin er hugsuð til að koma til móts við þau ótalmörgu sem upplifað hafa sorg vegna fósturláts. Að stundinni lokinni verður gengið í fósturduftreitinn í kirkjugarðinum, þar sem hægt er að leggja blóm við minnisvarðann. Minningarstundin er haldin í samvinnu Sjúkrahússins á Akureyri og Útfararþjónustu kirkjugarða Akureyrar. Prestur er sr. Guðrún Eggertsdóttir, tónlistarflutning annast: Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti og Sigríður Hulda Arnardóttir, söngkona. Athöfnin er öllum opin.