Fréttir

Leiðarsteinar til farsælla og betra lífs

Glerárkirkja, í samstarfi við ráðgjafa- og sálgæslusetrið HEILD, stendur fyrir námskeiðinu LEIÐARSTEINAR TIL FARSÆLLA OG BETRA LÍFS, þriðjudagana 15. og 22. maí næstkomandi. Námskeiðið er þróað með aðferðafræði tólf sporanna að leiðarljósi - andlegu ferðalagi - með kenningum úr tilvistarfræðum (existentialism), sálfræði (HAM) og fl. Jafnframt eru kynntar aðferðir íhugunarfræðanna.

Þrjú í framboði til vígslubiskups á Hólum

Í frétt sem birtist fyrir stundu á kirkjan.is segir: Frambjóðendur til vígslubiskupsembættisins að Hólum eru orðnir þrír en í dag var tekið á móti framboðstilkynningu sr. Gunnlaugs Garðarssonar sóknarprests í Glerárprestakalli á Akureyri. Má nú gera ráð fyrir að allur póstur stimplaður á lokadegi umsóknarfrests, 30. apríl, hafi borist kjörstjórn og því muni frambjóðendum ekki fjölga frekar. Eru þeir þá þrír: Sr. Gunnlaugur Garðarsson, sr. Kristján Björnsson og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Sjá nánar í frétt á kirkjan.is.

Aðalsafnaðarfundur Lögmannshlíðarsóknar

Aðalsafnaðarfundur Lögmannshlíðarsóknarverður haldinn þann 13. maí nk. í Glerárkirkju að lokinni messu sem hefst kl 11.00. Boðið verður upp á súpu og brauð áður en fundur hefst. Dagskrá fundar: 1.     Skýrsla formanns 2.     Rekstrarreikningur ársins 2011 3.     Önnur mál Sóknarnefnd Lögmannshlíðarsóknar

Æskulýðsstarf kirkjunnar og menntun umsjónarfólks

Djáknarnir í Hallgrímskirkju og Glerárkirkju skrifa í dag um menntun þeirra sem sjá um barna- og unglingastarf í kirkjum landsins. Í pistli þeirra sem birtist á trú.is hvetja þau kirkjustjórnina í heild sinni til þess að bjóða upp á námskeið um allt land fyrir þau sem koma að barna- og unglingastarfi kirkjunnar. Lesa pistil á trú.is.

Gangur í framkvæmdum á Hólavatni

Nýbyggingaframkvæmdir við sumarbúðir KFUM og KFUK að Hólavatni eru nú á lokasprettinum fyrir sumarið. Í ágúst 2008 var tekin skóflustunga að nýju 210 fermetra húsi og nú tæpum fjórum árum seinna er draumurinn að verða að veruleika og í sumar munu börnin við Hólavatn fá að njóta þess að dvelja í nýjum herbergjum og eldri svefnaðstöðu hefur verið breytt í tómstundarými með borðtennisborði, fótboltaspili og fönduraðstöðu. Sjá nánar á kfum.is.

Messa í Glerárkirkja

Sunnudagurinn 6. maí er fjórði sunnudagur eftir páska og ber hann nafnið Cantate sem þýðir söngur. Sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur, mun leiða messu í Glerárkirkju kl. 11:00 þann dag og verður lofgjörðin og gleðin í fyrirrúmi í samræmi við þema og tilefni dagsins. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots.

Vortónleikar Karlakórs Akureyrar-Geysis

Karlakór Akureyrar-Geysir heldur vortónleika sína í Glerárkirkju, laugardaginn 5. maí og hefjast þeir kl. 15:00. Þar verða sungin lög úr öllum áttum, hefðbundin íslensk karlakóralög og erlend lög í bland. Fjórir einsöngvarar koma fram á tónleikunum auk þess sem KAG-kvartettinn tekur lagið. Stjórnandi er Valmar Väljaots. Miðaverð er 2.000 kr. Miðar eru seldir við innganginn.

Vortónleikar Gospelkórs Akureyrar

Sunnudagskvöldið 6. maí kl. 20:00 heldur Gospelkór Akureyrar vortónleika sína í Glerárkirkju. Ljúfir tónar í bland við hressandi gospeltónlist! Allir eru hjartanlega velkomnir, við vonumst til að sjá sem flesta og eiga saman góða kvöldstund. Sérstakir gestir eru Rúnar Eff og Valmar Väljaots. Stjórnandi er Marína Ósk Þórólfsdóttir. Miðaverð er 1500 kr., 1000 kr. fyrir börn 12 ára og yngri. Miðar verða seldir við innganginn en einnig er hægt að kaupa miða í Pennanum. (Sjá einnig á Facebook)

Leitið fyrst ríkis hans og réttlætis

Miðvikudagskvöldið 14. mars kl. 20:00 hélt sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir erindi í safnaðarsal Glerárkirkju sem nefndist: ,,Æðruleysi í friðar og sáttarstarfi.” Dagskráin var hluti af umræðukvöldaröð Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis og Glerárkirkju. Yfirskrift samræðukvöldanna á vorönn 2012 var VEGUR TRÚARINNAR. Þetta var sjötta kvöldið af átta. Markmið kvöldanna var að skapa vettvang til að ræða um andlegt líf og þýðingu þess fyrir trúað fólk, deila reynslu af vegferðinni og ræða saman um hana. Á vef prófastsdæmisins er nú að finna stutta samantekt frá kvöldinu og myndbönd með erindi sr. Örnu. Lesa meira...

Trúarbragðafræðsla

Dr. Sigurður Pálsson er einn fremsti fræðimaður á Íslandi um trúarbragðafræðslu. Í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær og er nú birt á trú.is fjallar hann um mikilvægi fræðslunnar og um þá stefnumótun sem hefur farið fram á Evrópskum vettvangi. Lesa grein Sigurðar á trú.is.