Fréttir

Samherji styrkir æskulýðsstarf Glerárkirkju

Samherji hf. boðaði til móttöku síðdegis í dag í KA-heimilinu á Akureyri og afhenti við það tækifæri styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu upp á 75 milljónir króna. Þar af fékk æskulýðsstarf Glerárkirkju eina milljón króna. Við í Glerárkirkju þökkum kærlega fyrir okkur. Sjá nánar í frétt á vikudagur.is.

Áætlun um helgihald í Glerárkirkju árið 2012

Hér á vefnum má nálgast áætlun um helgihald í Glerárkirkju 2012 - birt með fyrirvara um breytingar.

Fermingar 2013

Á síðustu árum hefur það færst í vöxt að fólk vilji vera tímanlega í því að undirbúa fermingardagana. Til þess að koma til móts við þær fjölskyldur höfum við í Glerárkirkju nú um árabil birt upplýsingar um fermingardagana í Glerárkirkju með rúmlega árs fyrirvara. Hér koma upplýsingar um fermingar í Glerárkirkju árið 2013.

Helgihald í Glerárkirkju um jól og áramót

Helgihald í Glerárkirkju um jól og áramót     31. desember - Gamlársdagur  Kl. 18:00 - Aftansöngur Sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur, þjónar. Félagar úr Kór Glerárkirkju syngja undir stjórn Valmars Väljaots.  1. janúar 2012 - Nýársdagur  Kl. 14:00 - Hátíðarmessa Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni, predikar. Félagar úr Kór Glerárkirkju syngja undir stjórn Valmars Väljaots.  Prestar, starfsfólk og sóknarnefnd Glerárkirkju óska bæjarbúum gleðilegra jóla og Guðs blessunar á nýju ári.

Fjársjóður hjartans

Skálholtsútgáfan hefur gefið út litla fjársjóðskistu. Þetta eru bænir og biblíuvers í önnum hversdagsins á 84 kortum – öðrum megin er biblíuvers sem auðvelt er að tileinka sér, hinum megin er bæn. Nafið Fjársjóður er tilvísun til ritningarversins: Hvar sem fjársjóður þinn er þar mun og hjarta þitt vera.

Kristur kemur

"Sjá, mærin mun þunguð verða og son ala. Nafn hans mun vera Immanúel". Það þýðir: Guð er með oss. (Matt.1:23) Hér á eftir má lesa aðventuhugleiðingu sr. Gunnlaugs Garðarssonar, sóknarprests úr safnaðarblaði desembermánaðar.

Jólakortasýning

Á aðventu 2011 er jólakortasýning í anddyri Glerárkirkju. Þar eru til sýnis kort úr tveimur einkasöfnum, annars vegar úr safni Gerðar Pálsdóttur, húsmæðrakennara, sem í dag er búsett á Hrafnagili og hins vegar úr safni Björns Guðmundssonar (1919-2011). Aðeins brotabrot af söfnunum eru til sýnis í kirkjunni og er hér með komið á framfæri þakklæti til Gerðar annars vegar og fjölskyldu Björns hins vegar fyrir að lána kort til sýningarinnar.

Söfnun fyrir hjálparstarf kirkjunnar

Söfnunin "Mér er ekki sama" verður send út í beinni útsendingu frá Hofi föstudagskvöldið 16. desember kl. 20. Gestir og gangandi eru velkomnir í salinn. Enginn aðgangseyrir en tekið verður á móti frjálsum framlögum sem renna óskipt til Hjálparstarfs kirkjunnar. Sjá nánar á menningarhús.is og á help.is

Fjórði sunnudagur í aðventu í Glerárkirkju

Sunnudagurinn 18. desember er fjórði sunnudagur í aðventu. Þann dag er mikið um dýrðir í Glerárkirkju. Klukkan ellefu er fjölskylduþjónusta með fjölbreyttri dagskrá og gengið í kringum jólatréð í lokin. Klukkan fjögur eru jólatónleikar Kórs Glerárkirkju og kórs eldri borgara ,,Í fínu formi" Við í Glerárkirkju vonumst til þess að sjá ykkur sem flest. Þá minnum við einnig á aðventusamveru eldri borgara, föstudaginn 16. desember klukkan þrjú.

Á Aðventu

Dagurinn styttist óðum og skammdegið ræður ríkjum. Hátíð ljós og friðar er skammt undan. Aðventan er hafin. Margir farnir að lýsa upp og skreyta híbýli sín með jólaljósum. Það er tilhlökkun í loftinu, jólaundirbúningur er að fara í fullan gang. Jólagjafainnkaupin eru sjálfsagt byrjuð hjá mörgum og margir að reyna að uppfylla óskir.